Segir markmenn lata og vill franskan rennilás á takkaskó Valur Páll Eiríksson skrifar 27. september 2022 12:31 Jón Gnarr lét sig hafa það að horfa á landsleik Englands og Þýskalands í gær. Vísir/Vilhelm Jón Gnarr, fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, grínisti og leikari með meiru, fór mikinn á samfélagsmiðlinum Twitter í gær á meðan hann horfði á leik Englands og Þýskalands í Þjóðadeild Evrópu. Hann segist hafa neyðst til að horfa á leikinn hvar hann sat fastur á hótelherbergi í Þýskalandi. „[
S]it hér á hótelherbergi í þýskalandi og hef ekkert að horfa á nema þennan leik. skil hvorki leikinn né þýsku. heyrði þulinn segja “Japan” áðan en skil ekki samhengið. en held auðvitað með Þýskalandi,“ sagði Jón meðal annars á Twitter í gærkvöld. Hann sagði þá að bæði lið þyrftu að bæta sína spilamennsku á meðan fyrri hálfleiknum stóð en hann var markalaus. Englendingar verða að laga sendingar, þurfa að vera lengri og hnitmiðaðri. Þjóðverjar alltof stífir í vörninni, vantar meira flæði og of mikið einspil í sóknum. heilt yfir ágætur bolti en mætti samt vera meira samba en minni polki #boltaspjall— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) September 26, 2022 „[Þ]að er ekki nóg að hreinsa bara frá markinu og sparka boltanum eitthvað. nota svona tækifæri í öfluga sókn, ekki bara éta og bryðja róandi lyf. og svo verður einhver að fara að kenna markmönnum að gefa sendingar. öll orðin þreytt á þessum löngu sendingum þeirra bara eitthvað,“ sagði Jón enn fremur en lét það ekki duga um markverðina. „Getur nú varla verið erfitt starf að vera markmaður, hanga á sama stað einsog aumingi og horfa á aðra sprengja sig á hlaupum. hoppa smá og henda sér jörðina nokkrum sinnum. eru meira að segja með e-a asnalega hanska á höndunum og eru örugglega að berjast fyrir að fá hjálma. rugl!“ sagði Jón og ljóst að þeir Nick Pope og Marc-Andre Ter Stegen hafa ekki heillað hann mikið. Franskan rennilás á takkaskóna Jóni leiddist þá að horfa á leikmenn að reima skóþveng sinn. Það væri bæði alltof tímafrekt og skapaði að auki slysahættu. Franskur rennilás myndi leysa vandamálið. þegar ég horfi á leiki þá leiðist mér alltaf að horfa uppá leikmenn reima skóna sína. fer alltof mikill tími í þetta og skapar líka slysahættu. hvað hafa margir dottið um hálfvita sem er að reima ? get real!! pic.twitter.com/jYfeRWv3y9— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) September 26, 2022 Jón studdi Þjóðverja í leiknum, líkt og fram kemur að ofan, en fékk þó ekki að sjá þá fagna sigri. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust þeir þýsku 2-0 yfir með mörkum frá Ilkay Gundogan og Kai Havertz, sem báðir leika á Englandi. Átta mínútum eftir mark Havertz hafði England jafnað, á 75. mínútu eftir mörk Luke Shaw og Masons Mount. Átta mínútum síðar skoraði Harry Kane þriðja mark Englands af vítapunktinum en Havertz skoraði sitt annað mark á 87. mínútu til að tryggja þeim þýsku stig. England hafnaði í botnsæti riðils liðanna í Þjóðadeildinni, með þrjú stig, og féll niður í B-deild. Þjóðverjar enduðu með sjö stig þar fyrir ofan. Ungvegar komu mörgum á óvart og lentu í öðru sæti með tíu stig en sigur Ítalíu á þeim ungversku í gærkvöld tryggði Evrópumeisturunum toppsætið og sæti í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Leik lokið: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Leik lokið: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Í beinni: Grindavík-Valur | Valsmenn geta komist í 2-0 Körfubolti Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Fótbolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: FH-KR 1-2 | Vesturbæingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Leik lokið: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Liverpool staðfestir komu Slot Víkingarnir fyrrverandi öflugir í Noregi „Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“ Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Dagný framlengir samning sinn við West Ham Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Sjá meira