Pogba segir Mourinho til syndanna: „Lætur leikmönnum líða eins og þeir séu ekki til“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 12:02 Paul Pogba er hrifnari af þjálfunaraðferðum Ole Gunnars Solskjær en Josés Mourinho. epa/PETER POWELL Paul Pogba lætur José Mourinho heyra það í viðtali við Sky Sports og sakar hann um að hunsa leikmenn og láta þeim líða eins og þeir séu ekki til.
Mourinho fékk Pogba til Manchester United fyrir tímabilið 2016-17 og í fyrstu var samband þeirra gott. Fljótlega kastaðist hins vegar í kekki milli þeirra og sambandið var orðið afar slæmt þegar Mourinho var rekinn frá United rétt fyrir jólin 2018. Pogba segist kunna mun betur við þjálfunaraðferðir eftirmanns Mourinhos, Ole Gunnars Solskjær. „Ole er öðruvísi. Hann fer ekki gegn leikmönnunum. Þótt hann velji þá ekki í byrjunarliðið ýtir hann þeim ekki til hliðar eins og þeir séu ekki lengur til. Það er munurinn á Mourinho og Ole,“ sagði Pogba við Sky Sports. „Einu sinni var samband okkar Mourinhos gott eins og allir sáu en næsta dag vissirðu ekki hvað gerðist. Sambandið var skrítið og ég get ekki útskýrt það.“ United vann 1-3 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Eftir leikinn gengu skotin milli þeirra Solskjærs og Mourinhos. Pogba segir að Mourinho hafi þar reynt að dreifa athyglinni frá tapi sinna manna. „Ég veit ekki hvað gerðist en ég er viss um að Mourinho sagði eitthvað sem fengi fólk til að tala. Það er það sem hann gerir,“ sagði Pogba. „Við náðum í úrslitin sem við vildum og við nutum augnabliksins því við þekkjum Mourinho og hvað honum finnst skemmtilegt. Við þurfum ekki á þessu að halda heldur einbeitum okkur bara að okkur sjálfum. Við unnum, hann tapaði og vildi ekki tala um leikinn heldur um pabba einhvers. Það er það sem hann gerir. Allir þekkja það, þetta var mjög Mourinho-legt.“ United tekur á móti Burnley á sunnudaginn. Í gær tryggðu Pogba og félagar sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar með 2-0 sigri á Granada á Old Trafford. United vann einvígið, 4-0 samanlagt.
Enski boltinn Mest lesið Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Tók sinn tíma að jafna sig Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Sjá meira