Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Eiður Þór Árnason og Jakob Bjarnar skrifa 13. janúar 2022 13:15 Helgi Seljan er ekki horfinn úr blaðamennskunni. Vísir/Vilhelm Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar.
Kjarninn greinir frá uppsögninni og vísar í færslu sem Helgi birti inn á lokuðu vefsvæði starfsmanna RÚV. Þar segir hann ákvörðunina hvorki hafa verið tekna í skyndi né af neinni vonsku. „Ég mat það bara sem svo að nú væri rétti tíminn til að takast á við nýjar áskoranir á nýjum stað. Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburðarrás undanfarinna missera hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfirleitt fór að velta þessum möguleika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vitandi það að öll höfum við lært og munum draga lærdóm af því sem gengið hefur á,“ segir Helgi í skilaboðum sínum til samstarfsmanna á RÚV. Þar vísar hann til atburða sem gerðust í tengslum við umfjöllun Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu. Kjarninn hefur til að mynda greint frá því að starfsmaður Samherja hafi elt og áreitt Helga mánuðum saman og svokölluð „Skæruliðadeild Samherja“ skipulega reynt að grafa undan trúverðugleika fréttamannsins. Einnig kærði Samherji Helga til siðanefndar RÚV vegna ummæla sem hann lét falla á samfélagsmiðlum. Jón Trausti hættir sem ritstjóri Fram kemur á vef Stundarinnar að Helgi muni vinna umfjallanir fyrir miðla Stundarinnar ásamt því að gegna hlutverki rannsóknarritstjóra. Um er að ræða nýja stöðu sem þekkist á erlendum fjölmiðlum. Samhliða breytingunum stígur Jón Trausti Reynisson úr stóli ritstjóra og verður eingöngu framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins Stundarinnar og blaðamaður á ritstjórn Stundarinnar. Frá stofnun í janúar 2015 hefur Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir gegnt stöðu ritstjóra ásamt Jóni Trausta. Hún verður framvegis ein aðalritstjóri. Helgi hefur lengi verið einn þekktasti fréttamaður landsins og meðal annars hlotið blaðamannaverðlaun og fjölda tilnefninga fyrir vinnu sína í Kastljósi og fréttaskýringaþættinum Kveik. Hann hefur fjórum sinnum verið valinn sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaununum. Getur loks svarað fyrir sig með góðri samvisku Vísir ræddi stuttlega við Helga í tilefni af þessum vistaskiptum. Hann var fyrst spurður um þennan titil, rannsóknarritstjóri, sem ekki hefur sést fyrr á Íslandi? „Þessi titill er vel þekktur erlendis frá og er fyrst og fremst til marks um að mér sé falið að halda utan um og vinna í samvinnu við aðra stærri verkefni og tímafrekari. Svolítið eins og ég hef verið að gera,“ segir Helgi. Helgi Seljan segist ekki hættur að fjalla um Samherjamálið, ef einhver er að velta því fyrir sér.vísir/vilhelm Hann vill ekki fara mörgum orðum um hver verði hans fyrstu viðfangsefni á Stundinni. „Ég er ekki hættur að fjalla um Samherjamálið, ef það er það sem þú ert að fiska eftir, kvótalaus. Þar fyrir utan lít ég svo á að málfrelsi mitt sé nú orðið á pari við aðra þegna þessa samfélags, sem aftur veitir mér leyfi til að svara fyrir mig.“ Helgi vísar þar til hinna umdeildu siðareglna Ríkisútvarpsins sem fjallað var mjög um á sínum tíma en hann var fundinn sekur um brot við þeim af tilfallandi siðanefnd RÚV. Hann lítur ekki svo á, þó hann sé nú að hverfa af skjánum og í prentið að þar með sé hann kominn á byrjunarreit. „Nei alls ekki. Þar byrjaði ég vissulega og fann mig vel. En það eru tuttugu ár síðan og á þeim tíma hefur bylting orðið í miðlun upplýsinga, sem til dæmis bindur ekki hendur miðla til að koma frá sér efni á einn hátt frekar en annan.“
Ríkisútvarpið Vistaskipti Samherjaskjölin Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Fleiri fréttir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira