Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   mán 05. desember 2022 17:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Brasilíu og Suður-Kóreu: Neymar í byrjunarliðinu
Mynd: Getty Images

Króatía er komið áfram í 8-liða úrslitin eftir magnaðan sigur á Japan eftir vítaspyrnukeppni þar sem markvörðurinn Dominik Livakovic fór á kostum.


Króatía mætir annað hvort Brasilíu eða Suður Kóreu í 8-liða úrslitunum en leikur Brasilíu og Suður Kóreu fer fram kl. 19.

Neymar er búinn að jafna sig af meiðslum og er í byrjunarliðinu í kvöld en hann hefur ekkert tekið þátt á mótinu síðan hann meiddist í fyrstu umferð.

Það eru tíu breytingar á Brasilíska liðinu frá 1-0 tapi liðsins gegn Kamerún en Eder Militao heldur sæti sínu.

Hwang Hee Chan leikmaður Suður Kóreu skoraði sigurmarkið gegn Portúgal í lokaumferð riðilsins eftir að hafa komið inn á af bekknum en hann er verðlaunaður með byrjunarliðssæti í dag.

Brasilía: Alisson, Militao, Silva, Marquinhos, Danilo, Casemiro, Paqueta, Raphinha, Neymar, Vinicius Jr, Richarlison.

Suður Kórea: Seung-Gyu Kim, Moon-Hwan Kim, Young-Gwon Kim, Min-Jae Kim, Jin-Su Kim, In-Beom Hwang, Woo-Young Jung, Hee-Chan Hwang, Heung-Min Son, Gue-Sung Cho, Jae-Sung Lee.


Athugasemdir
banner
banner
banner