Forstjóri Eskju segir útgerðina geta stundum borgað hærri kvótaskatt Kristján Már Unnarsson skrifar 22. nóvember 2021 23:50 Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri er forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði. Arnar Halldórsson Forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði er opinn fyrir hærri kvótaskatti og segir að vel megi vera að gjaldtaka fyrir fiskveiðiheimildir sé of lág. Sonur Alla ríka, sem seldi hlut sinn í fyrirtækinu, hafnar því að hann hafi verið að taka út kvótagróða.
Í frétt Stöðvar 2 var dæmið frá Eskifirði rifjað upp þegar tveir synir Aðalsteins Jónssonar, Alla ríka, seldu hlut sinn í Eskju. Sölunni var í grein Reynis Traustasonar í tímaritinu Mannlífi árið 2007 lýst svo að kvóti Alla ríka hefði farið til London, synirnir sagðir lifa þar í vellystingum meðan Eskifjörður væri í uppnámi. Báðir mótmæltu þeir skrifunum á sínum tíma og sögðu þau gróusögur og uppspuna, útúrsnúninga, rangfærslur og sleggjudóma. Annar sonurinn, Kristinn, er aftur fluttur heim á Eskifjörð. Kristinn Aðalsteinsson, fjárfestir á Eskifirði.Arnar Halldórsson „Mér fannst aldrei sjálfum gagnrýnisvert þó að ég seldi fyrirtæki sem var í sjávarútvegi. Ekki frekar en að þetta hefði bara verið hlutur í Hagkaupum eða einhverju slíku,“ segir Kristinn Aðalsteinsson, sem núna starfar sem fjárfestir. -Þú varst ekki að taka út kvótagróðann? „Nei, nei. Enda.. sko, það hefði nú verið svolítið skrítið ef ég hefði gefið það. Það hefði nú verið sennilega talað verr um mig þá,“ svarar Kristinn. Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Eydís Ásbjörnsdóttir, leiddi lista félagshyggjufólk en hún kemur úr Samfylkingunni, sem vill hærri kvótagjöld. Samfylkingarkonan Eydís Ásbjörnsdóttir er forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar en hún er oddviti L-lista félagshyggjufólks.Arnar Halldórsson „Þá erum við að tala um stærstu fyrirtækin, ca. 20 stærstu sjávarútvegsfyrirtækin,“ segir Eydís. Þrjú fyrirtækjanna eru í Fjarðabyggð. Telur hún að hærri kvótaskattur kæmi niður á samfélögum eins og þar? „Nei, það held ég ekki. Það myndi nýtast, - koma þjóðinni til gagns,“ svarar Eydís. Við spyrjum Þorstein Kristjánsson, tengdason Alla ríka, sem í dag er aðaleigandi Eskju, hvort skapa megi meiri sátt um kvótakerfið. Guðrún Þorkelsdóttir SU, eitt af skipum Eskju, á loðnuveiðum.KMU „Ég hef nú oftar en ekki heyrt að þessi gjaldtaka sé of lág. Það má vel vera,“ segir Þorsteinn. -Þú værir alveg til í að borga meira fyrir kvótann? „Stundum er það, já. Stundum getum við borgað meira. Þetta fer svolítið eftir mörkuðunum sem við sjáum ekki fyrir. Við sjáum ekki þegar lagt er á okkur veiðileyfagjaldið hvað við losnum við fiskinn á,“ svarar Þorsteinn. Fjallað var um arfleifð Alla ríka í þættinum Um land allt í kvöld. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins:
Sjávarútvegur Fjarðabyggð Um land allt Tengdar fréttir Makrílafli innan lögsögu Íslands dregist verulega saman í sumar Makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi mælist nærri sextíu prósentum minni en í fyrra og hefur ekki mælst minni í áratug. Makrílafli innan lögsögu Íslands hefur einnig snarminnkað í sumar og hafa útgerðir þurft að sækja megnið af makrílnum alla leið í Smuguna. 30. ágúst 2021 20:58 Heilaskurðlæknir á Eskifirði hyggst mergsjúga Austfirði „Ég kynntist hérna manni og kom hérna og hugsaði: Váá! Þetta er geggjaður staður,“ svarar Borgnesingurinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, þegar hún er spurð hvað heilaskurðlæknir sé að gera á Eskifirði. 18. nóvember 2021 21:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fleiri fréttir Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Sjá meira
Makrílafli innan lögsögu Íslands dregist verulega saman í sumar Makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi mælist nærri sextíu prósentum minni en í fyrra og hefur ekki mælst minni í áratug. Makrílafli innan lögsögu Íslands hefur einnig snarminnkað í sumar og hafa útgerðir þurft að sækja megnið af makrílnum alla leið í Smuguna. 30. ágúst 2021 20:58
Heilaskurðlæknir á Eskifirði hyggst mergsjúga Austfirði „Ég kynntist hérna manni og kom hérna og hugsaði: Váá! Þetta er geggjaður staður,“ svarar Borgnesingurinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, þegar hún er spurð hvað heilaskurðlæknir sé að gera á Eskifirði. 18. nóvember 2021 21:01