Albert og Lóa opna Gina Tricot-verslun á Íslandi

Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir munu opna Gina …
Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir munu opna Gina Tricot-verslun á Íslandi í mars. Ljósmynd/Samsett

Sænska tískufa­ta­keðjan Gina Tricot opn­ar nýj­ar versl­an­ir á Íslandi á þessu ári í gegn­um umboðssamn­ing. Um er að ræða eina af stæstu tískufa­ta­keðjum Svíþjóðar en fyr­ir­tækið rek­ur 150 versl­an­ir í fjór­um lönd­um ásamt net­versl­un sem send­ir víða um Evr­ópu. Lóa D. Kristjáns­dótt­ir og Al­bert Þór Magnús­son, eig­end­ur Lindex á Íslandi, reka versl­un­ina hér­lend­is.

„Þegar tæki­færi bauðst að gefa Íslend­ing­um mögu­leika á að upp­lifa tísku­vörumerkið Gina Tricot urðum við strax áhuga­söm og hef­ur það verið sér­lega ánægju­legt að und­ir­búa komu Gina Tricot til Íslands. Við erum full til­hlökk­un­ar til framtíðar­inn­ar hér á Íslandi,“ seg­ir Lóa Dag­björt.

End­ur­nýta og hanna eldri flík­ur

Hluti vöru­línu Gina Tricot hef­ur verið aðgengi­leg í gegn­um vefsíðu noomi.is síðan 2019 en með samn­ingi við eig­end­ur tek­ur umboðssamn­ing­ur við sem trygg­ir að vörumerki Gina Tricot verður nú að fullu gerð skil með net­versl­un sem opn­ar um miðjan mars og versl­un sem opn­ar síðar á ár­inu með heild­ar­vöru­línu Gina Tricot.

Gina Tricot legg­ur mikla áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð og að vera virk­ur þátt­tak­andi í að skapa sjálf­bær­ari tískuiðnað. Til dæm­is með því að end­ur­nýta og hanna eldri flík­ur í sam­starfi við hönnuði úr hönn­un­ar­há­skól­an­um í Borås und­ir merkj­um „rema­ke-design“ auk þess að kynna lín­ur sem byggja á að end­ur­nýta flík­ur og efni og þannig byggja und­ir hringrás­ariðnað. Gina Tricot er einnig sam­starfsaðili sam­taka eins og UN Women, UNICEF og Al­heims­sjóð fyr­ir nátt­úr­una (World Wild­li­fe fund for nature) ásamt því að fram­leiða vör­ur und­ir vott­un­um svans­merk­is­ins (e. The Nordic Swan Ecola­bel) og GOTS (e. Global Org­anic Textile Stand­ard) sem trygg­ir notk­un 100% líf­rænn­ar bóm­ull­ar. 

Skandi­nav­ísk hönn­un

Árið 2019 inn­leiddi Gina Tricot RENT með far­sæl­um hætti í ákveðnum versl­un­um þar sem viðskipta­vin­ir gátu leigt sína upp­á­halds­flík fyr­ir veisl­una eða stórt til­efni en með því móti und­ir­strik­ar Gina Tricot mik­il­vægi þess að „loka hringn­um“ og há­marka nokt­un flíkna og end­ur­nýt­ingu sam­hliða því að fyr­ir­byggja sóun sem er hluti af sjálf­bærn­is­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins.

„Við erum stöðugt að leit­ast við að bæta okk­ur og verða betri með sjálf­bær­um hætti. Upp­bygg­ing Gina Tricot hef­ur leitt  til þess að nú er Ísland að bæt­ast við sem fyr­ir okk­ur er afar spennn­andi. Í sam­vinnu við okk­ar umboðsaðila erum við him­in­lif­andi að opna dyr Gina Tricot fyr­ir okk­ar viðskipta­vini á Íslandi,“ seg­ir Ted Bom­an, for­stjóri Gina Tricot AB.

Ein­kenni Gina Tricot er skandi­nav­ísk hönn­un sem miðar að því að veita kon­um inn­blást­ur frá trend­um helstu tísku­borga heims. Í höfuðstöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Borås, þar sem starfa um 200 manns, eru fjöldi hönnuða sem hafa frá upp­hafi unnið að því að skapa  flík­ur fyr­ir kon­ur sem hafa áhuga á tísku, hvort sem er hvers­dags eða spari. Fyr­ir­tækið hef­ur fengið í sam­starf við sig þekkta tísku­frömuði eins og Bianca Ingrosso og Hanna MW.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda