Helgi Andri segir upp og biður konunnar Samúel Karl Ólason skrifar 1. júní 2023 22:04 Helgi Andri Jónsson. Helgi Andri Jónsson, stofnandi og forstjóri SalesCloud, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Í yfirlýsingu segist hann ætla að setja fjölskylduna í fyrsta sætið en yfirlýsingin endar á: „Takk fyrir allt elskan mín. Og þig langar mig að spyrja – Viltu giftast mér?“
Helgi segir að á þeim rúmu tíu árum sem fyrirtækið hafi verið starfrækt hafi SalesCloud vegnað vel. „SalesCloud hefur náð að hrista verulega upp í íslenska markaðnum og ryðja sér til rúms í geira sölulausna og það fyllir mig gríðarlegu stolti. Fyrirtækið er nú mikilvægur hlekkur í verslun í íslensku samfélagi og vinnur með yfir eina milljón greiðslna í mánuði hverjum. Vaxtarhraði þess í dag er enn mjög mikill og fer meira að segja fram úr vaxtarhraða síðasta árs. Á yfirstandandi ársfjórðungi höfum við náð að loka fleiri samningum en á sama tíma í fyrra og það er áður en tekið er tillit til júnítekna,“ segir Helgi í áðurnefndri yfirlýsingu. Þá segir hann mikið þrekvirki hafa unnist á tímum Covid og segist hann stoltur af því verki sem hann og starfsfólk hans hafi unnið. Framlag starfsfólksins hafi verið ómetanlegt og þakkar Helgi einnig fjárfestum sem færðu fyrirtækinu nauðsynlegt fjármagn. „Á persónulegum nótum þá langar mig að þakka fjölskyldunni minni fyrir að þola mig á þessum tíma. Þeirra stuðningur hefur verið leiðarljós mitt að von á erfiðum tímum. Ég er líka mjög þakklátur fyrir stuðning úr ólíkustu áttum og verið þannig hvattur áfram,“ segir Helgi. Hann segir síðasta árið ekki einungis verið krefjandi á atvinnusviðinu. Hann hafi orðið faðir í fyrsta sinn og sé að læra allt sem því fylgir. „Á stundum sem þessum er það svo skýrt hvað það er sem mestu máli skiptir. Fyrir mig er það fjölskyldan mín. Ég kýs að velja heill hennar fram yfir minn persónulega metnað til vinnu og vona að litli strákurinn minn lesi þetta einhvern tímann og verði stoltur af mér og þessari ákvörðun. Til lífsförunauts míns Kollu sem hefur alltaf verið kletturinn minn og alls engu síður í þessu ferðalagi mínu tengt vinnu. Takk fyrir allt elskan mín. Og þig langar mig að spyrja – Viltu giftast mér?“ spyr Helgi í lok yfirlýsingarinnar.
Vistaskipti Ástin og lífið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Viðskipti innlent Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Viðskipti innlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Viðskipti innlent Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Viðskipti innlent GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Samstarf Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Sjá meira