Zlatan verður áfram í Milan

Zlatan Ibrahimovic verður áfram hjá AC Milan.
Zlatan Ibrahimovic verður áfram hjá AC Milan. AFP

Hinn 39 ára gamli knattspyrnumaður Zlatan Ibrahimovic verður áfram í herbúðum AC Milan á næstu leiktíð en samkvæmt Sky á Ítalíu hefur hann samþykkt eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið.

Ibrahimovic mun þéna um sjö milljónir evra fyrir næstu leiktíð, en hann hefur skorað 15 mörk í ítölsku A-deildinni á tímabilinu. Þá sneri hann aftur í sænska landsliðið á dögunum í fyrsta skipti í fimm ár.

AC Milan er í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir Inter Mílanó sem er í kjörstöðu á toppnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert