Vísa hundruðum Haítíbúa úr landi þrátt fyrir ófremdarástand Kjartan Kjartansson skrifar 20. september 2021 15:54 Haítíbúar stíga úr flugvél Bandaríkjastjórnar sem flutti þá frá Texas tik Port au Prince í gær. Þúsundir þeirra reyndu að falast eftir hæli í Bandaríkjunum en var vísað frá. AP/Joseph Odelyn Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar.
AP-fréttastofan segir að sjö flugferðir með Haítíbúa frá Texas til Haítí séu á dagskránni á miðvikudag. Fólkinu var ekki gefinn kostur á að sækja um hæli í Bandaríkjunum. Mikill fjöldi Haítíbúa hefur flúið eyríkið eftir jarðskjálftann mannskæða árið 2010. Fyrr á þessu ári var forseti landsins myrtur og í ágúst fórust þúsundir til viðbótar í öðrum stórum jarðskjálfta. Ákvörðun ríkisstjórnar Joes Biden um að vísa fólkinu til Haítí kemur þrátt fyrir að aðstæður í landinu hafi aðeins vernsað frá því í vor en þá veitti stjórnin tugum þúsunda Haítíbúa sem eru ólöglega í Bandaríkjunum tímabundna vernd gegn brottvísun í ljósi aðstæðna þar. Washington Post segir að glæpagengi stjórni nú hverfum og mikilvægum samgönguæðum á Haítí, brenni íbúðarhús, nauðgi, ræni og drepi. Þúsundir Haítíbúa hafi flúið ofbeldi og óstjórnina. Bandaríski embættismenn halda því fram að nauðsynlegt sé að vísa fólkinu úr landi til þess að koma í veg fyrir að bylgja örvæntingarfulls farandfólks reyni að komast yfir landamærin að Texas frá Mexíkó. Alejandro Mayorkas, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, réttlætti ákvörðunina um brottvísun fólks til Haítí með því að jarðskjálftinn í ágúst hafi aðeins valdið tjóni á landfræðilega afmörkuðu svæði. Aðstæður leyfðu að fólk væri sent þangað frá Bandaríkjunum. Til stendur að vísa enn fleira fólk frá landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó á næstunni. Um tólf þúsund manns hafa safnast saman undir brú í Del Río í Texas eftir að hafa komist yfir landamærin frá Ciudad Acuña í Mexíkó. Drone footage shows more than 12,000 migrants, mostly Haitian, at the makeshift camp in Del Rio, Texas https://t.co/FB2yqCvbd2 pic.twitter.com/eq7EfZpGfn— Reuters (@Reuters) September 20, 2021 AP segir að brottflutningurinn á flótta- og farandfólki nú gæti orðið sá umfangsmesti og sneggsti í fleiri áratugi í Bandaríkjunum.
Haítí Bandaríkin Flóttamenn Tengdar fréttir Í kapphlaupi við tímann að ná til nauðstaddra Hjálparstarfsmenn etja nú kapphlaup við tímann til að ná til nauðstaddra eftir jarðskjálftann mikla á Haíti áður en hitabeltisstormur gengur á land í kvöld. Forsætisráðherra landsins segir engan tíma mega missa. 16. ágúst 2021 14:47 Mánuði eftir morðið ræður óvissan ríkjum Mánuði eftir að Jovenel Moise, forseti Haítí, var myrtur á heimili sínu hefur enginn af þeim sem handteknir hafa verið vegna árásarinnar verið færður fyrir dómara. Dómarar og aðrir sem komið hafa að rannsókninni segjast hafa orðið fyrir þrýstingi um að breyta skýrslum og eru í felum vegna morðhótana. 8. ágúst 2021 10:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Sjá meira
Í kapphlaupi við tímann að ná til nauðstaddra Hjálparstarfsmenn etja nú kapphlaup við tímann til að ná til nauðstaddra eftir jarðskjálftann mikla á Haíti áður en hitabeltisstormur gengur á land í kvöld. Forsætisráðherra landsins segir engan tíma mega missa. 16. ágúst 2021 14:47
Mánuði eftir morðið ræður óvissan ríkjum Mánuði eftir að Jovenel Moise, forseti Haítí, var myrtur á heimili sínu hefur enginn af þeim sem handteknir hafa verið vegna árásarinnar verið færður fyrir dómara. Dómarar og aðrir sem komið hafa að rannsókninni segjast hafa orðið fyrir þrýstingi um að breyta skýrslum og eru í felum vegna morðhótana. 8. ágúst 2021 10:14