Ráðherra biður um frest og felur Haraldi skýrslugerðina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. maí 2021 13:57 Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir. Stjórnarráðið Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnalæknir hefur fallist á beiðni heilbrigðisráðherra um að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi hér á landi.
Gerð skýrslunnar er í samræmi við beiðni Alþingis þessa efnis að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Skýrslubeiðendur óskuðu eftir því að skýrslan yrði unnin af óháðum aðila og varð niðurstaða Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sú að leita til Haraldar um verkefnið. Óskað hefur verið eftir framlengdum tímafresti á skilum skýrslunnar til þingsins en frestur til að skila skýrslunni rennur út í þessari viku. Haraldur var ritari skimunarráðs sem skilaði áliti til landlæknis í febrúar 2019 um staðsetningu, stjórn og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum á Íslandi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.Vísir/vilhelm „Gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin til afhendingar í lok fyrstu viku júnímánaðar,“ segir í tilkynningunni á vef Stjórnarráðsins. Telur upplýsingarnar eiga að liggja fyrir Alþingi samþykkti í byrjun mars skýrslubeiðni til heilbrigðisráðherra þar sem óskað var eftir að greint yrði frá öllum forsendum að baki þeirri ákvörðun að flytja greiningar á sýnum til Danmerkur. Í síðustu viku steig hver þingmaðurinn á fætur öðrum í pontu og bað forseta Alþingis um kanna hvernig vinnu miðar. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.Vísir/Vilhelm „Ég hefði haldið að þessa skýrslu hefði bara verið hægt að prenta út. Vegna þess að þessar upplýsingar hefðu legið fyrir til grundvallar þessari vegferð. Það var aldeilis ekki svo,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar. Ráðherra hefur lögum samkvæmt tíu vikna frest til að skila slíkri skýrslu og voru níu vikur liðnar í síðustu viku. Segir öryggi kvenna í hættu „Maður upplifir að það er óöryggi meðal kvenna með algjöra grundvallar heilbrigðisþjónustu. Okkur fannst mikilvægt að það yrði fenginn óháður aðili til að rýna forsendurnar og gögnin til þess að vinnan væri líkleg til þess að skapa traust aftur,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, á þinginu í síðustu viku. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.Vísir/Vilhelm „Í dag held ég að við séum komin með vandann það mikið í fangið að það er ekki hægt að bíða eftir niðurstöðu skýrslu með aðgerðir. Ég held að heilbrigðisráðherra verði bara að taka ákvörðun um að þetta var ekki góð hugmynd og að við skulum framkvæma þessar rannsóknir hér á Íslandi,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar. „Öryggi kvenna er í hættu. Þeirra heilsa og öryggi er í hættu út af þessu klúðri.“
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir „Þetta er margs konar klúður“ Sérfræðingar sem komu fyrir velferðarnefnd í morgun lýstu yfir áhyggjum af stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini, að sögn nefndarformanns. Hún segir breytingar á þjónustunni klúður sem stefni heilsu kvenna í hættu. Þingmenn ráku í dag á eftir skýrslu heilbrigðisráðherra um efnið. 5. maí 2021 18:26 Ósáttir sérfræðingar sagðir hafa komið á fund velferðarnefndar Þingmenn furðuðu sig á seinagangi við gerð skýrslu um flutning á skimunum fyrir leghálskrabbameini kvenna á Alþingi í dag. 5. maí 2021 14:05 Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum. 3. maí 2021 13:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent Fleiri fréttir Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Sjá meira
„Þetta er margs konar klúður“ Sérfræðingar sem komu fyrir velferðarnefnd í morgun lýstu yfir áhyggjum af stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini, að sögn nefndarformanns. Hún segir breytingar á þjónustunni klúður sem stefni heilsu kvenna í hættu. Þingmenn ráku í dag á eftir skýrslu heilbrigðisráðherra um efnið. 5. maí 2021 18:26
Ósáttir sérfræðingar sagðir hafa komið á fund velferðarnefndar Þingmenn furðuðu sig á seinagangi við gerð skýrslu um flutning á skimunum fyrir leghálskrabbameini kvenna á Alþingi í dag. 5. maí 2021 14:05
Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum. 3. maí 2021 13:14