Segir Stjörnuna, Tindastól og Keflavík enn sterkust og Valur verði varasamur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. janúar 2021 11:32 Dominykas Milka og félagar í Keflavík eru líklegir til afreka í Domino's deild karla sem hefst aftur í kvöld eftir langt hlé. vísir/daníel Teitur Örlygsson fagnar því að Domino's deild karla fari aftur af stað í kvöld eftir rúmlega þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirufaraldursins. „Þetta er alveg geggjað. Á tímabili var maður eiginlega búinn að gefast upp að það yrði tímabil. Það er kannski ekki útséð með það ennþá en við vonum að þetta haldist allt réttu megin við línuna svo við getum klárað þetta,“ sagði Teitur í samtali við Vísi. Leikið verður afar þétt næstu vikurnar enda þarf að klára 21 umferð fyrir lok apríl. Teitur segir að leikmenn hljóti að fagna því að spila svona marga leiki á kostnað æfinga. Óskastaða fyrir leikmenn „Núna verður spilað stíft sem er draumur leikmanna. Maður hefði frekar viljað hafa þetta svona þegar maður var að spila sjálfur,“ sagði Teitur léttur. „Ég held að bæði leikmönnum og þjálfurum finnist þetta mjög skemmtilegt.“ Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að meiðslum muni fjölga vegna leikjaálagsins. „Ég held að það meiri hætta á því núna fyrst, þegar menn eru ekki í leikformi og réttum takti. En síðan verður allt í góðu að spila tvo leiki í viku.“ Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópum liðanna í Domino's deildinni síðan keppni var stöðvuð í byrjun október. „Þetta verður forvitnilegt. Það er ljóst að nokkur lið eru búin að halda sínum mannskap og æfa vel og þau eru kannski aðeins fyrir framan hin liðin núna. En ég ætla ekki að dæma liðin í fyrstu leikjunum. Ég held þetta eigi eftir að breytast mikið,“ sagði Teitur. Ekki alveg búinn að kaupa Hester Sveitungar hans í Njarðvík hafa gert nokkrar breytingar á sínum leikmannahópi og sóttu meðal annars Antonio Hester sem lék með Tindastóli 2016-18. „Mér líst ágætlega á hann. Ég var aðeins að skoða hvað hann hefur verið að gera síðustu árin og það er misjafnt. En þegar hann spilaði í Austurríki eða Sviss var hann virkilega flottur. Hann þekkir deildina hérna en ég er ekki alveg búinn að kaupa þetta allt saman,“ sagði Teitur. Antonio Hester varð bikarmeistari með Tindastóli 2018.vísir/bára „Menn þurfa alltaf að sanna sig. En þetta er flottur leikmaður sem var með góðar tölur hérna á Íslandi, tuttugu stiga og tíu frákasta maður í leik. Og ef hann skilar því í Njarðvík er hann happafengur. Á móti kemur að það eru fleiri stórir leikmenn í deildinni en þegar hann hérna síðast.“ Teitur segir að sömu lið séu enn líklegust til afreka og voru það fyrir tímabilið. „Stjarnan, Tindastóll og Keflavík virðast sterkust, og Valur þótt þeir hafi tapað fyrsta leiknum fyrir Stjörnunni. Þeir verða gríðarlega sterkir,“ sagði Teitur en Valsmenn fengu il sín portúgalskan leikstjórnanda á meðan hléinu stóð. Fékk meiri tíma en gamli þjálfarinn Liðin hafa ekki bara gert breytingar á leikmannahópum sínum því Þór Ak. skipti um þjálfara. Bjarki Ármann Oddsson tók við Þórsurum af Andy Johnston sem stýrði þeim aðeins í einum leik. „Það gæti alveg haft áhrif en hann hefur fengið fínan tíma, meiri tíma en hinn þjálfarinn til undirbúnings. Ég veit að Júlíus Orri [Ágústsson] er meiddur og það er slæmt fyrir þá,“ sagði Teitur að lokum. Fjórir leikir fara fram í Domino's deild karla í kvöld og tveir annað kvöld. Fjórir þeirra verða sýndir beint á Stöð 2 Sport. Domino's tilþrifin verða á dagskrá klukkan 22:10 í kvöld og Domino's Körfuboltakvöld klukkan 22:00 annað kvöld. Fimmtudagur 14. janúar Kl. 18:15 Stjarnan - Höttur, sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 19:15 KR - Tindastóll Kl. 19:15 Njarðvík - Haukar Kl. 20:15 ÍR - Valur, sýndur á Stöð 2 Sport Föstudagur 15. janúar Kl. 18:15 Grindavík - Þór Ak., sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 20:15 Keflavík - Þór Þ., sýndur á Stöð 2 Sport Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla Stjarnan Tindastóll Keflavík ÍF Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
„Þetta er alveg geggjað. Á tímabili var maður eiginlega búinn að gefast upp að það yrði tímabil. Það er kannski ekki útséð með það ennþá en við vonum að þetta haldist allt réttu megin við línuna svo við getum klárað þetta,“ sagði Teitur í samtali við Vísi. Leikið verður afar þétt næstu vikurnar enda þarf að klára 21 umferð fyrir lok apríl. Teitur segir að leikmenn hljóti að fagna því að spila svona marga leiki á kostnað æfinga. Óskastaða fyrir leikmenn „Núna verður spilað stíft sem er draumur leikmanna. Maður hefði frekar viljað hafa þetta svona þegar maður var að spila sjálfur,“ sagði Teitur léttur. „Ég held að bæði leikmönnum og þjálfurum finnist þetta mjög skemmtilegt.“ Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að meiðslum muni fjölga vegna leikjaálagsins. „Ég held að það meiri hætta á því núna fyrst, þegar menn eru ekki í leikformi og réttum takti. En síðan verður allt í góðu að spila tvo leiki í viku.“ Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópum liðanna í Domino's deildinni síðan keppni var stöðvuð í byrjun október. „Þetta verður forvitnilegt. Það er ljóst að nokkur lið eru búin að halda sínum mannskap og æfa vel og þau eru kannski aðeins fyrir framan hin liðin núna. En ég ætla ekki að dæma liðin í fyrstu leikjunum. Ég held þetta eigi eftir að breytast mikið,“ sagði Teitur. Ekki alveg búinn að kaupa Hester Sveitungar hans í Njarðvík hafa gert nokkrar breytingar á sínum leikmannahópi og sóttu meðal annars Antonio Hester sem lék með Tindastóli 2016-18. „Mér líst ágætlega á hann. Ég var aðeins að skoða hvað hann hefur verið að gera síðustu árin og það er misjafnt. En þegar hann spilaði í Austurríki eða Sviss var hann virkilega flottur. Hann þekkir deildina hérna en ég er ekki alveg búinn að kaupa þetta allt saman,“ sagði Teitur. Antonio Hester varð bikarmeistari með Tindastóli 2018.vísir/bára „Menn þurfa alltaf að sanna sig. En þetta er flottur leikmaður sem var með góðar tölur hérna á Íslandi, tuttugu stiga og tíu frákasta maður í leik. Og ef hann skilar því í Njarðvík er hann happafengur. Á móti kemur að það eru fleiri stórir leikmenn í deildinni en þegar hann hérna síðast.“ Teitur segir að sömu lið séu enn líklegust til afreka og voru það fyrir tímabilið. „Stjarnan, Tindastóll og Keflavík virðast sterkust, og Valur þótt þeir hafi tapað fyrsta leiknum fyrir Stjörnunni. Þeir verða gríðarlega sterkir,“ sagði Teitur en Valsmenn fengu il sín portúgalskan leikstjórnanda á meðan hléinu stóð. Fékk meiri tíma en gamli þjálfarinn Liðin hafa ekki bara gert breytingar á leikmannahópum sínum því Þór Ak. skipti um þjálfara. Bjarki Ármann Oddsson tók við Þórsurum af Andy Johnston sem stýrði þeim aðeins í einum leik. „Það gæti alveg haft áhrif en hann hefur fengið fínan tíma, meiri tíma en hinn þjálfarinn til undirbúnings. Ég veit að Júlíus Orri [Ágústsson] er meiddur og það er slæmt fyrir þá,“ sagði Teitur að lokum. Fjórir leikir fara fram í Domino's deild karla í kvöld og tveir annað kvöld. Fjórir þeirra verða sýndir beint á Stöð 2 Sport. Domino's tilþrifin verða á dagskrá klukkan 22:10 í kvöld og Domino's Körfuboltakvöld klukkan 22:00 annað kvöld. Fimmtudagur 14. janúar Kl. 18:15 Stjarnan - Höttur, sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 19:15 KR - Tindastóll Kl. 19:15 Njarðvík - Haukar Kl. 20:15 ÍR - Valur, sýndur á Stöð 2 Sport Föstudagur 15. janúar Kl. 18:15 Grindavík - Þór Ak., sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 20:15 Keflavík - Þór Þ., sýndur á Stöð 2 Sport Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fimmtudagur 14. janúar Kl. 18:15 Stjarnan - Höttur, sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 19:15 KR - Tindastóll Kl. 19:15 Njarðvík - Haukar Kl. 20:15 ÍR - Valur, sýndur á Stöð 2 Sport Föstudagur 15. janúar Kl. 18:15 Grindavík - Þór Ak., sýndur á Stöð 2 Sport Kl. 20:15 Keflavík - Þór Þ., sýndur á Stöð 2 Sport
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Stjarnan Tindastóll Keflavík ÍF Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik