Íslenski boltinn

Jóhann Árni á leið í Stjörnuna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jóhann Árni í leik gegn Stjörnunni sumarið 2020. Nú stefnir í að hann muni klæðast bláu á næstu leiktíð.
Jóhann Árni í leik gegn Stjörnunni sumarið 2020. Nú stefnir í að hann muni klæðast bláu á næstu leiktíð. Vísir/HAG

Svo virðist sem Stjarnan mæti með mikið breytt lið til leiks í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu næsta sumar en það virðist sem Jóhann Árni Gunnarsson sé á leið í Garðabæinn.

Jóhann Árni er fæddur árið 2001 og lék með Fjölni í Pepsi Max-deildinni sumarið 2020 er Fjölnir féll án þess að vinna leik. Hann lék svo með liðinu í Lengjudeildinni síðasta sumar en virðist nú á leið til Stjörnunnar.

Fótbolti.net greindi fyrst frá skiptunum sem hafa þó ekki enn verið staðfest.

Jóhann Árni á að baki 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands sem og 80 KSÍ leiki fyrir Fjölni. Hefur hann skorað 20 mörk fyrir félagið sem verður að teljast ágætt fyrir leikmann sem leikur nær alltaf í stöðu miðjumanns og er þekktur fyrir að skapa færi fyrir samherja sína.

Hinn tvítugi Jóhann Árni hefur verið orðaður við KR undanfarið en virðist nú á leið í Garðabæinn. 

Svo virðist sem Ágúst Gylfason, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, ætli að sækja leikmenn úr öllum áttum. Goðsögnin Óskar Örn Hauksson gekk í raðir félagsins frá KR fyrir skemmstu og þá kom Sindri Þór Ingimundarson frá 3. deildarliði Augnabliks.

Stjarnan endaði í 7. sæti Pepsi Max deildar karla sumarið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×