Einar kannast ekki við fullyrðingar síns gamla vinnustaðar Vésteinn Örn Pétursson skrifar 15. maí 2022 19:37 Einar Þorsteinsson segir ekkert hæft í því að viðræður milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks um myndun borgarmeirihluta séu hafnar. Hann gerir borgarstjórastólinn ekki að skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi, líkt og kom fram í máli hans í sérstökum umræðuþætti á Stöð 2 í kvöld. Vísir/Einar Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir engar óformlegar viðræður um myndun meirihluta hafnar af sinni hálfu. Hvorki við Sjálfstæðisflokk né aðra.
Ríkisútvarpið greindi frá því fyrr í kvöld að óformlegar meirihlutaviðræður í Reykjavík hafi hafist í dag á milli oddvita Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Flokkarnir fengu tíu borgarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum í gær og þyrftu því minnst tvo fulltrúa til viðbótar til að mynda meirihluta. Samkvæmt frétt RÚV snúa viðræður flokkanna tveggja að möguleikanum á samstarfi með Viðreisn og Flokki fólksins, en þeir fengu einn fulltrúa hvor. Framsókn fékk fjóra fulltrúa í kosningunum en Sjálfstæðisflokkurinn sex. Spjallaði við Hildi á leiðinni upp í RÚV Einar segir að fréttir Ríkisútvarpsins, hvar hann var áður fréttamaður, af óformlegum viðræðum Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins séu ekki réttar. „Það er nú dálítið skemmtilegt í svona ástandi, þar sem allir eru einhvern veginn að spá í það sem er að gerast. Ég veit ekki alveg hvaðan þessi frétt er komin,“ sagði Einar í sérstökum umræðuþætti á Stöð 2 um niðurstöður kosninganna, þegar hann var spurður út í hinar meintu viðræður. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, greiðir hér atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Telja verður líklegt að þar sé um að ræða atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum. Vísir/Vilhelm Hann segir að bæði hann og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, hafi verið í viðtali á Sprengisandi í Bylgjunni í dag. Þaðan hafi þau farið samferða í höfuðstöðvar RÚV í Efstaleiti, til þess að mæta í umræðuþáttinn Silfrið. „Við spjölluðum um pólitík þar, við Hildur. En það var mjög óformlegt spjall.“ Og ekkert haft Þórdísi Lóu [Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar] og Kolbrúnu [Baldursdóttur, oddvita Flokks fólksins] í aftursætinu á meðan? „Nei, þær voru ekki einu sinni í skottinu“ sagði Einar í gamansömum tón. „Það er bara ekkert að gerast,“ sagði Einar. Dóra mun sakna Lífar Í þættinum sagði Dagur B. Eggertsson þá að fulltrúar meirihlutans, sem féll í kosningunum í gær, og stillt saman strengi sína. Fyrr í dag var greint frá því að Vinstri græn, sem héldu sínum borgarfulltrúa og voru aðili að meirihlutasamstarfi síðasta kjörtímabils, myndu ekki taka þátt í meirihlutaviðræðum. Dóra Björt, oddviti Pírata, sagði að sér kæmi ákvörðun VG öðrum þræði á óvart. „Þetta er auðvitað þeirra ákvörðun. Við höfum áður heyrt af því að það hafi stundum verið þessi þrýstingur, af því að í síðustu kosningum fengu þau inn einn fulltrúa en höfðu vonast eftir meiru. En ákváðu að ganga til meirihlutasamstarfs þó,“ sagði Dóra. Flokkarnir hefðu unnið saman að grænum málefnum og feminískum málum, sem sannarlega væru málefni sem VG setti á oddinn. „Þannig að þetta eru vonbrigði fyrir okkur og leitt að horfa á eftir Líf. Hún hefur verið með okkur og við höfum verið í góðu samstarfi,“ sagði Dóra. Dagurinn í dag hefði farið í að ræða við fjölmiðla, meta stöðuna og ræða við stuðningsfólk.
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2022 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisútvarpið Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Fleiri fréttir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Sjá meira