Fótbolti

Maguire: Þetta er risastórt fyrir tímabilið okkar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var eðlilega kátur með sigur liðsins í kvöld.
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var eðlilega kátur með sigur liðsins í kvöld. Eric Alonso/Getty Images

Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var eðlilega kampakátur með 0-2 sigur liðsins gegn Villareal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Liðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum með sigrinum, en Maguire segir hann risastóran fyrir tímabilið.

„Þetta er risastór fyrir tímabilið okkar,“ sagði Maguire í leikslok, en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Ole Gunnar Solskjær var rekinn sem stjóri United.

„Seinustu mánuði höfum við verið langt frá því að vera nógu góðir og við þurftum að ná í úrslit fyrir stuðningsmennina og tímabilið okkar. Við þurfum að ganga úr skugga um að þetta sé bara byrjunin og halda áfram að berjast.“

Maguire og félagar byrjuðu leikinn hálf brösulega og heimamenn í Villareal virtust lengi vel líklegri aðilinn í leiknum

„Þetta var erfitt í fyrri hálfleik. Það var mikilvægt að halda okku inni í leiknum og mér fannst strákarnir sem komu af bekknum hjálpa okkur mikið. Frammistaðan í seinni hálfleik var mjög góð.“

„Við lögðum áherslu á að ná í úrslit. Þú þarft að spila vel þegar þú spilar á útivelli í Evrópukeppni. Við fengum út úr þessum leik það sem við áttum skilið af því að við sköpuðum okkur gó færi.“

Cristiano Ronaldo skoraði fyrra mark United, en það kom eftir að Fred setti mikla pressu á Etienne Capoue og þaðan barst boltinn inn fyrir á Ronaldo. Maguire segir að liðið hafi rætt um að setja pressu á andstæðinginn og það hafi skilað sér.

„Við viljum eiga frumkvæðið og vera agressívir. Í fyrri hálfleik vorum við kannski að spila eins og við værum hræddir. Við töluðum um það og fyrra markið kom eftir góða pressu.“

„Ronaldo er búinn að vera frábær. Við þurfum að koma okkur aftur á þann stað þar sem við erum góðir og stöðugir af því að ef við náum því þá eigum við möguleika á að vinna alla leiki með hann frammi,“ sagði Maguire að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×