Fjórir eru með virk Covid-19 smit innanlands en alls eru 17 með virk smit og því 13 af þeim smit sem greinast við landamæraskimun.
Þetta kemur fram á Covid.is.
Virk smit innanlands hafa ekki verið færri síðan 24. júlí en þá voru þau tvö. Degi síðar, 25. júlí, voru þau fimm og 60 voru með virkt smit 1. ágúst í annarri bylgju faraldursins.
Sé miðað við fyrstu bylgju faraldursins, síðasta vor, voru innanlandssmitin ekki nema fjögur 15. maí þegar fyrsta bylgja faraldursins var að deyja út.
Ekkert smit greindist innanlands í gær og verða almennar fjöldatakmarkanir hækkaðar í 50 manns á morgun þegar tilslakanir á samkomutakmörkunum taka gildi.
Reglugerð þess efnis gildir í þrjár vikur.
Einnig er gert ráð fyrir tilslökunum í tiltekinni starfsemi. Heimilt verður að allt að 200 manns mega koma saman á ákveðnum stöðum, meðal annars á söfnum, í sviðslistum og á íþróttaviðburðum. Fólk þarf þó að geta setið í sætum, upplýsingar þurfa að vera til staðar um hvern og einn, auk þess sem einn metri þarf að vera á milli óskyldra aðila og grímur eru skylda.