Sögunni endalausu um Teigsskóg virðist lokið með sögulegum samningi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 08:29 260 metra löng brú sem þvera á Þorskafjörð. Svo mun vegurinn halda áfram í vesturátt, meðal annars í gegnum Teigsskóg þar sem jörðina Gröf er að finna. Vegagerðin Það vakti athygli margra síðdegis í gær að á meðan löngum ríkisstjórnarfundi um minnisblað sóttvarnalæknis stóð greindi samgönguráðherra frá langþráðum áfanga í vegagerð hér á landi. Vegalagning um Gufudalssveit væri fram undan en deilur um svæðið og nýjan veg þar um hafa staðið í tvo áratugi. Sagan endalausa virðist ætla að enda eftir allt saman.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að Vegagerðin og landeigendur Grafar í Þorskafirði hafi náð samkomulagi um vegalagningu í Gufudalssveit. Eigendur Grafar voru þeir einu sem ósamið var við. „Það er fagnaðarefni að ná þessum áfanga sem tryggir framgang þessarar nauðsynlegu samgöngubótar á Vestfjörðum,“ segir á vef Vegagerðarinnar en deilur hafa staðið um framkvæmdina vegna áhrifa á umhverfið. Þá sérstaklega Teigsskóg sem er stærsti samfelldi birkiskógur á Vestfjörðum. Teigsskógur í Þorskafirði.Vegagerðin „Við endurupptöku málsins nú síðustu ár hefur í allri hönnun verið lögð höfuðáhersla á að leita leiða til þess að lágmarka þau áhrif eins og nokkur kostur er. Vegagerðin og landeigendur Grafar hafa átt í viðræðum á árinu með það meðal annars að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar en þessum viðræðum lauk með undirskrift samnings í dag, þann 23. júlí,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Vegagerðin og eigendur Grafar séu á einu máli að standa vel að verki og vanda frágang eins og kostur er. „Landeigendur Grafar hafa staðið gegn framkvæmdinni með hagsmuni náttúrunnar að leiðarljósi og verið í forgrunni í þeirri baráttu. Í kjölfar niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi framkvæmdaleyfi hafa þeir hins vegar unnið að því með Vegagerðinni að laga framkvæmdina sem best að landi innan landamerkja Grafar þannig að hún hafi sem minnst inngrip í náttúruna.“ Framkvæmdir við vegalagningu hófust sumarið 2020 með endurbyggingu Vestfjarðavegar frá Skálanesi í Gufudal sem gert er ráð fyrir að ljúki nú á næstu vikum. Verður þá rúmlega 5 kílómetra kafli Vestfjarðavegar lagður bundnu slitlagi. Vorið 2021 hófust svo framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar frá Kinnarstöðum að Þórisstöðum og er bygging 260 metra langrar brúar að hefjast. Gert er ráð fyrir verklokum árið 2024. Eins og sjá má eru framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar hafnar.Vegagerðin Næsti áfangi verksins er bygging Djúpadalsvegar, rúmlega 5 kílómetra langs vegar sem mun tengja Djúpadal við nýjan Vestfjarðaveg. Útboð var auglýst þann 21. júlí síðastliðinn og gert er ráð fyrir að þeim framkvæmdum verði lokið sumarið 2022. Frekari útboð verði svo auglýst í haust. „Langþráður áfangi er í höfn,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. „Eins og í öðrum framkvæmdum þá þarf að standa vel að verki og vanda frágang eins og kostur er. Áfram veginn,“ segir Sigurður Ingi. Fjallað var um þau tíðindi þegar framkvæmdaleyfi fékkst á vegalagninguna sumarið 2020 í fréttum Stöðvar 2.
Teigsskógur Reykhólahreppur Samgöngur Vegagerð Tengdar fréttir Dynjandisheiði ekki í útboð á þessu ári vegna fjárskorts Vegagerðin hefur fallið frá því að bjóða út stærsta áfanga nýs vegar yfir Dynjandisheiði í sumar þar sem ekki eru til peningar í verkið. Áformað er þó að bjóða út næsta áfanga vegagerðar um Gufudalssveit í haust. 24. júní 2021 22:11 Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52 Vestfirðingar vonast til að hylli undir lok sögunnar endalausu „Við höfum náttúrlega reynslu af því að þurfa að bíða mjög lengi eftir því að fá samgöngubætur, eins og Teigsskógarruglið hefur verið. Við bara þekkjum það vel. Og það er ekkert í höfn fyrr en við bara sitjum í bílunum okkar og það er verið að opna vegina okkar,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. 21. mars 2021 07:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Dynjandisheiði ekki í útboð á þessu ári vegna fjárskorts Vegagerðin hefur fallið frá því að bjóða út stærsta áfanga nýs vegar yfir Dynjandisheiði í sumar þar sem ekki eru til peningar í verkið. Áformað er þó að bjóða út næsta áfanga vegagerðar um Gufudalssveit í haust. 24. júní 2021 22:11
Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52
Vestfirðingar vonast til að hylli undir lok sögunnar endalausu „Við höfum náttúrlega reynslu af því að þurfa að bíða mjög lengi eftir því að fá samgöngubætur, eins og Teigsskógarruglið hefur verið. Við bara þekkjum það vel. Og það er ekkert í höfn fyrr en við bara sitjum í bílunum okkar og það er verið að opna vegina okkar,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. 21. mars 2021 07:45