Cloud9 og DWG KIA seinustu liðin til að tryggja sig í næstu umferð MSI Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2021 23:00 Cloud9 unnu alla þrjá leiki sína í dag og fylgja því heimsmeisturunum í DWG KIA í næstu umferð MSI. Colin Youngwolff/Riot Games/Riot Games Inc. via Getty Images Seinasti dagur riðlakeppninnar á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll fór fram í dag þegar C-riðill kláraðist. Cloud9 snéri gengi sínu við og tryggði sig áfram í næstu umferð ásamt heimsmeisturunum í DWG KIA. Fyrsti leikur dagsins var einmitt viðureign Cloud9 og DWG KIA. Í fyrri leik liðanna hafði DWG KIA unnið nokkuð þægilegan sigur, en leikur liðanna í dag var mun jafnari. DWG KIA voru þó með yfirhöndina þegar líða fór á leikinn. Eftir um 37 mínútna leik snéru fulltrúar LCS leiknum sér í hag og unnu að lokum mikilvægan sigur í baráttunni um að fylgja DWG KIA upp úr riðlinum. LET'S GO CLOUD9 #C9WIN #MSI2021 pic.twitter.com/a37Y0wsMyo— LCS (@LCSOfficial) May 11, 2021 Í öðrum leik dagsins mættust DetonatioN FocusMe og Gilette Infinity. DetonatioN FocusMe fór þar með nokkuð öruggan sigur og lyfti sér upp fyrir Cloud9 í annað sæti riðilsins á innbyrgðis viðureignum, en bæði lið með tvo sigra og tvö töp. DWG KIA og Gillette Infinity mættust svo í þriðja leik dagsins. Leikurinn leit kannski út fyrir að vera nokkuð jafn, en DWG KIA voru þó alltaf skrefinu á undan og unnu að lokum góðan sigur sem gerði út um vonir Gillette Infinity um að komast upp úr riðlinum. This loss eliminates @InFinitye_sport from #MSI2021 Rumble Stage contention. pic.twitter.com/JtnOxE1Z1K— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Þar næst mættust Cloud9 og DetonatioN FocusMe, en Cloud9 þurfti á sigri að halda til að eiga enn von á að komast í næstu umferð. Cloud9 byggði hægt og rólega upp gott forskot, og eftir aðeins rúmlega 24 mínútur tryggðu þeir sér sinn fjórða dreka og þar með drekasál. Aðeins sex mínútum síðar var leiknum lokið, og Cloud9 því komnir með forystuna í baráttunni um annað sæti riðilsins. DetonatioN FocusMe þurftu því á sigri að halda gegn ríkjandi heimsmeisturum, ásamt því að treysta því að Gillette Infinity myndi vinna Cloud9 í lokaleik dagsins til að tryggja sér úrslitaleik gegn Cloud9. Eins og í fyrri leik liðanna tók DetonatioN FocusMe frá Japan forystuna snemma gegn heimsmeisturunum í DWG KIA. Kóresku risarnir voru fljótir að vinna það forskot upp, og unnu að lokum sannfærandi sigur eftir 28 mínútna leik. DetonatioN FocusMe hafði því lokið keppni á MSI. After their loss against @DWGKIA, @teamDFM are out of Rumble Stage contention. #MSI2021 pic.twitter.com/Xqo66iTCRu— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Seinasti leikur dagsins var svo viðureign Gillette Infinity og Cloud9. Úrslit riðilsins voru nú þegar ráðin og leikurinn því ekki sá mikilvægasti. Gillette Infinity hefði með sigri jafnað DetonatioN FocusMe í þriðja sæti, en lengra gátu þeir ekki komist. Cloud9 tók forystuna snemma leiks, jók forskotið jafnt og þétt og vann að lokum öruggan sigur. Þeir unnu því alla þrjá leiki sína í dag og fara því fullir sjálfstrausts inn í næstu umferð. Fyrr í dag var svo kynnt leikjaniðurröðun fyrir næstu umferð sem hefst á föstudaginn. Hægt er að fylgjast með mótinu á Stöð 2 eSport og hefst útsending klukkan 12:30 næstkomandi föstudag. The #MSI2021 Rumble Stage Schedule for Day 1! pic.twitter.com/VJC9taKeCW— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Úrslit dagsins Cloud9 - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Gillette Infinity DWG KIA - Gillette Infinity Cloud9 - DetonatioN FocusMe DetonatioN FocusMe - DWG KIA Gillette Infinity - Cloud9 League of Legends Tengdar fréttir MAD Lions sigraði B-riðil þrátt fyrir óvænt tap í byrjun dags Í dag kláraðist B-riðill MSI mótsins í League of Legends í Laugardalshöll. MAD Lions og PSG Talon þóttu líklegust til að fara upp úr þessum riðli og það var nákvæmlega það sem gerðist. 10. maí 2021 22:30 RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti. 9. maí 2021 22:32 Cloud9 í erfiðri stöðu eftir óvænt tap á öðrum degi MSI Annar dagur MSI í League of Legends fór fram í Laugardalshöll í gær. Cloud9 frá Bandaríkjunum eru komnir í erfiða stöðu eftir óvænt tap gegn DetonatioN FousMe frá Japan, og hafa nú tapað fyrstu tveim leikjum sínum. 8. maí 2021 08:01 Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31 MSI hefst á morgun: Heimsmeistararnir ríða á vaðið MSI, eða Mid Season Invitational mótið í League of Legends hefst á morgun, en mótið er haldið í Laugardalshöll hér í Reykjavík. Þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið og hingað til lands eru mætt nokkur af bestu liðum heims. 5. maí 2021 22:31 Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Körfubolti Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira
Fyrsti leikur dagsins var einmitt viðureign Cloud9 og DWG KIA. Í fyrri leik liðanna hafði DWG KIA unnið nokkuð þægilegan sigur, en leikur liðanna í dag var mun jafnari. DWG KIA voru þó með yfirhöndina þegar líða fór á leikinn. Eftir um 37 mínútna leik snéru fulltrúar LCS leiknum sér í hag og unnu að lokum mikilvægan sigur í baráttunni um að fylgja DWG KIA upp úr riðlinum. LET'S GO CLOUD9 #C9WIN #MSI2021 pic.twitter.com/a37Y0wsMyo— LCS (@LCSOfficial) May 11, 2021 Í öðrum leik dagsins mættust DetonatioN FocusMe og Gilette Infinity. DetonatioN FocusMe fór þar með nokkuð öruggan sigur og lyfti sér upp fyrir Cloud9 í annað sæti riðilsins á innbyrgðis viðureignum, en bæði lið með tvo sigra og tvö töp. DWG KIA og Gillette Infinity mættust svo í þriðja leik dagsins. Leikurinn leit kannski út fyrir að vera nokkuð jafn, en DWG KIA voru þó alltaf skrefinu á undan og unnu að lokum góðan sigur sem gerði út um vonir Gillette Infinity um að komast upp úr riðlinum. This loss eliminates @InFinitye_sport from #MSI2021 Rumble Stage contention. pic.twitter.com/JtnOxE1Z1K— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Þar næst mættust Cloud9 og DetonatioN FocusMe, en Cloud9 þurfti á sigri að halda til að eiga enn von á að komast í næstu umferð. Cloud9 byggði hægt og rólega upp gott forskot, og eftir aðeins rúmlega 24 mínútur tryggðu þeir sér sinn fjórða dreka og þar með drekasál. Aðeins sex mínútum síðar var leiknum lokið, og Cloud9 því komnir með forystuna í baráttunni um annað sæti riðilsins. DetonatioN FocusMe þurftu því á sigri að halda gegn ríkjandi heimsmeisturum, ásamt því að treysta því að Gillette Infinity myndi vinna Cloud9 í lokaleik dagsins til að tryggja sér úrslitaleik gegn Cloud9. Eins og í fyrri leik liðanna tók DetonatioN FocusMe frá Japan forystuna snemma gegn heimsmeisturunum í DWG KIA. Kóresku risarnir voru fljótir að vinna það forskot upp, og unnu að lokum sannfærandi sigur eftir 28 mínútna leik. DetonatioN FocusMe hafði því lokið keppni á MSI. After their loss against @DWGKIA, @teamDFM are out of Rumble Stage contention. #MSI2021 pic.twitter.com/Xqo66iTCRu— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Seinasti leikur dagsins var svo viðureign Gillette Infinity og Cloud9. Úrslit riðilsins voru nú þegar ráðin og leikurinn því ekki sá mikilvægasti. Gillette Infinity hefði með sigri jafnað DetonatioN FocusMe í þriðja sæti, en lengra gátu þeir ekki komist. Cloud9 tók forystuna snemma leiks, jók forskotið jafnt og þétt og vann að lokum öruggan sigur. Þeir unnu því alla þrjá leiki sína í dag og fara því fullir sjálfstrausts inn í næstu umferð. Fyrr í dag var svo kynnt leikjaniðurröðun fyrir næstu umferð sem hefst á föstudaginn. Hægt er að fylgjast með mótinu á Stöð 2 eSport og hefst útsending klukkan 12:30 næstkomandi föstudag. The #MSI2021 Rumble Stage Schedule for Day 1! pic.twitter.com/VJC9taKeCW— LoL Esports (@lolesports) May 11, 2021 Úrslit dagsins Cloud9 - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Gillette Infinity DWG KIA - Gillette Infinity Cloud9 - DetonatioN FocusMe DetonatioN FocusMe - DWG KIA Gillette Infinity - Cloud9
Cloud9 - DWG KIA DetonatioN FocusMe - Gillette Infinity DWG KIA - Gillette Infinity Cloud9 - DetonatioN FocusMe DetonatioN FocusMe - DWG KIA Gillette Infinity - Cloud9
League of Legends Tengdar fréttir MAD Lions sigraði B-riðil þrátt fyrir óvænt tap í byrjun dags Í dag kláraðist B-riðill MSI mótsins í League of Legends í Laugardalshöll. MAD Lions og PSG Talon þóttu líklegust til að fara upp úr þessum riðli og það var nákvæmlega það sem gerðist. 10. maí 2021 22:30 RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti. 9. maí 2021 22:32 Cloud9 í erfiðri stöðu eftir óvænt tap á öðrum degi MSI Annar dagur MSI í League of Legends fór fram í Laugardalshöll í gær. Cloud9 frá Bandaríkjunum eru komnir í erfiða stöðu eftir óvænt tap gegn DetonatioN FousMe frá Japan, og hafa nú tapað fyrstu tveim leikjum sínum. 8. maí 2021 08:01 Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31 MSI hefst á morgun: Heimsmeistararnir ríða á vaðið MSI, eða Mid Season Invitational mótið í League of Legends hefst á morgun, en mótið er haldið í Laugardalshöll hér í Reykjavík. Þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið og hingað til lands eru mætt nokkur af bestu liðum heims. 5. maí 2021 22:31 Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Körfubolti Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira
MAD Lions sigraði B-riðil þrátt fyrir óvænt tap í byrjun dags Í dag kláraðist B-riðill MSI mótsins í League of Legends í Laugardalshöll. MAD Lions og PSG Talon þóttu líklegust til að fara upp úr þessum riðli og það var nákvæmlega það sem gerðist. 10. maí 2021 22:30
RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti. 9. maí 2021 22:32
Cloud9 í erfiðri stöðu eftir óvænt tap á öðrum degi MSI Annar dagur MSI í League of Legends fór fram í Laugardalshöll í gær. Cloud9 frá Bandaríkjunum eru komnir í erfiða stöðu eftir óvænt tap gegn DetonatioN FousMe frá Japan, og hafa nú tapað fyrstu tveim leikjum sínum. 8. maí 2021 08:01
Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9. 6. maí 2021 23:31
MSI hefst á morgun: Heimsmeistararnir ríða á vaðið MSI, eða Mid Season Invitational mótið í League of Legends hefst á morgun, en mótið er haldið í Laugardalshöll hér í Reykjavík. Þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið og hingað til lands eru mætt nokkur af bestu liðum heims. 5. maí 2021 22:31