Sá fyrsti til að vera dæmdur fyrir árásina á þinghúsið Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 19. júlí 2021 23:32 Paul Allard Hodgkins við innrásina í sal öldungadeildar Bandaríkjaþings. AP/Lögregla þinghússins Karlmaður frá Flórídafylki var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa rutt sér leið inn í sal öldungadeildar Bandaríkjaþings þegar staðfesta átti niðurstöður forsetakosninganna í byrjun þessa árs. Hann er sá fyrsti til að hljóta dóm fyrir glæp í tengslum við árásina á þinghúsið.
Saksóknarar höfðu farið fram á átján mánaða fangelsisdóm yfir Paul Allard Hodgkins, sem ruddist inn í þingsalinn ásamt fleirum, með fána Donalds Trump á lofti. Hann var sakaður um að hafa ógnað bandarísku lýðræði. Paul Allard er 38 ára gamall kranaverkamaður. Hann lýsti yfir sekt sinni í síðasta mánuði fyrir að reyna að koma í veg fyrir opinbera athöfn en hann var ekki sakaður um að ráðast á neinn eða valda skemmdum. Dómarinn sem kvaddi upp dóminn yfir Paul Allard í dag sagði hann hafa spilað stórt hlutverk í einu versta atviki í sögu Bandaríkjanna. „Þetta voru ekki mótmæli í nokkrum skilningi. Þetta var árás á lýðræðið,“ sagði dómarinn. „Hún skildi eftir sig blett sem mun sitja fastur á landinu í áraraðir.“ Um 140 særðust í átökunum, þann 6. janúar síðastliðinn. Einn var skotinn til bana og þrír aðrir létust eftir átökin. Fleiri en fimm hundruð hafa verið ákærðir vegna árásarinnar og má búast við að dómurinn í dag sé fordæmisgefandi fyrir mörg hinna málanna sem á eftir að dæma í.
Árás á bandaríska þinghúsið Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira