Körfubolti

Styrmir: Vonbrigði fram að þessu

Árni Jóhannsson skrifar
Styrmir Snær Þrastarson hitti úr 71% skota sinna í kvöld.
Styrmir Snær Þrastarson hitti úr 71% skota sinna í kvöld. Vísir / Hulda Margrét

Styrmir Snær Þrastarson mætti vel til leiks þegar hans menn í Þór frá Þorlákshöfn unnu KR í Vesturbænum 83-105 með sannfærandi hætti. Styrmir skoraði 24 stig með 71% hittni sem skilaði 26 framlagspunktum. Hann var á því að flest allt hafi gengið upp í leik liðsins í kvöld.

Styrmir var spurður að því hvort það hafi verið spurning um að hans lið hafi mætt tilbúnari til leiks en KR-ingarnir.

„Já, við vissum að þetta yrði stríð og að við þyrftum að mæta sterkir til leiks. Við vissum að þetta væri fjögurra stiga leikur og að með sigri þá næðum við að slíta okkur aðeins frá botninum. Vonandi getum við bara farið á sprett núna.“

KR liðið náði ekki að halda í við Þór lengi vel í seinni hálfleik eftir að hafa verið 11 stigum undir í fyrri hálfleik. Fann Styrmir fyrir því hvernig leikur heimamanna fjaraði út?

„Okkur fannst við eiga að vera að vera 20 stigum yfir í hálfleik en við hittum ekki úr öllum skotunum okkar. Svo í seinni náum við að komast á sprett og maður sér að þetta fer að verða vonlaust fyrir þá og við náum að nýta okkur það, ríðum á vaðið og vinnum þennan leik.“

Gekk allt upp hjá Þór frá Þorlákshöfn í dag?

„Já svona að mestu leyti, við hefðum getað haldið Williams aðeins meira niðri en á meðan hann var að skjóta öllu þá eru hinir ekki að skora.“

Stefnan hlýtur að vera hjá Þór Þ. að stefna á að vera með í úrslitakeppninni þegar vora tekur.

„Já ég meina Þór er með lið sem á að taka þátt í úrslitakeppninni. Þetta hafa verið vonbrigði fram að þessu en nú er komið gott mojo í liðið og nú þurfum við að keyra á þetta.“

Þór vann sinn fyrsta jafna leik og í raun og veru rúlluðu yfir KR í kvöld. Það hlýtur að gefa leikmönnum liðsins byr undir báða vængi.

„Já það gerir það og vonandi byggjum við bara ofan á þetta“, sagði Styrmir


Tengdar fréttir

Leik lokið: KR - Þór 83-105 | Þórsarar mikið betri og unnu nauðsynlegan sigur

KR tók á móti Þór frá Þorlákshöfn í fimmtándu umferð Subway deildar karla í körfubolta í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Gestirnir úr Þorlákshöfn skildu verkefnið og mættu tilbúnir til leiks og náðu í nauðsynlegan sigur og gerðu það sannfærandi. Lokatölur 83-105 og vandræði KR og eymd eykst þegar sjö umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×