Lífið

Eldar fyrir krón­prinsinn og fær viða­mikla um­fjöllun á BBC á sama deginum

Tryggvi Páll Tryggvason og Heimir Már Pétursson skrifa
Matseðill kvöldsins á Bessastöðum.
Matseðill kvöldsins á Bessastöðum. Vísir

Hann hefur verið ágætur, dagurinn hjá Gísla Matthíasi Auðunssyni kokki og eiganda veitingastaðarins Slippsins í Vestmannaeyjum. Á sama degi og matarvefur BBC segir hann vera að umbreyta íslenskri matarhefð sér hann um matinn í veislu til heiðurs Friðriki krónprins Danmerkur á Bessastöðum í kvöld.

Fjallað var um Gísla og veitingastað hans á matarvef BBC, en fréttavefur breska ríkisútvarpsins er einn sá víðlesnasti í heiminum. Er Gísli sagður vera í forystusveit matarhreyfingar sem vilji virða íslenska matarhefð, en á sama tíma knýja fram framþróun.

Umfjöllun matarvefs BBC er einstaklega ítarleg þar sem farið er vel yfir feril Gísla og veitingastað hans í Eyjum.

Gísli situr ekki auðum höndum í kvöld því líkt og kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld sér hann um matinn í veislu til heiðurs Friðriki krónprins sem kom til landsins í kvöld ásamt danskri sendinefnd til þess að kynna sér íslensk orkumál.

Matseðilinn er ekki af verri endanum líkt og kom fram hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni okkar sem fór yfir matseðilinn í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Má þar nefna beltisþara með sveppakremi og reyktri súrmjólk, þorskroð með hvannardufti og loðnuhrogni, hörpuskel með birkismjöri og þaragljáa, svo dæmi séu nefnd.

Friðrik krónprins Danmerkur var gestur Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands á Bessastöðum í kvöld.Vísir/Egill

„Við hlökkum til að geta sýnt okkar góðu gesti frá Danmörku hvað við höfum upp á að bjóða í vistvænni og umhverfisvænni matseld. Ég efast ekki um að þessar kræsingar munu renna ljúflega niður í maga þeirra,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands í viðtali við Heimi Má.

Guðna hlakkaði til að fá gesti í formlegt kvöldmatarboð, enda langt síðan slíkt hefur verið haldið á Bessastöðum.

„Hér hefur ekki verið heimsókn af þessu tagi í vel á annað ár og gaman að taka á móti Friðriki krónprins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×