Geta endanlega kveðið KR-grýluna í kút og sparkað henni út á hafsauga Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. júní 2022 13:00 Jason Daði Svanþórsson skoraði sigurmark Breiðabliks á Meistaravöllum. Vísir/Vilhelm Breiðablik vann loks sigur á KR er liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta þann 25. apríl síðastliðinn. Þau mætast á nýjan leik á Kópavogsvelli í kvöld og getur topplið deildarinnar endanlega kveðið KR-grýlu sína í kútinn. Fyrir leikinn á Meistaravöllum undir lok apríl mánaðar höfðu KR-ingar haft gríðarlegt tak á grænklæddum Blikum. Fara þurfti aftur til 7. ágúst 2018 til að finna síðasta sigur Breiðabliks. Nú er öldin önnur og meira að segja hörðustu KR-ingar eiga erfitt með að sjá liðið ná í úrslit í kvöld. Á meðan Breiðablik hefur verið svo gott sem óstöðvandi í sumar, ef frá er talinn einn leikur á Hlíðarenda, þá hefur KR hikstað. Spilamennska KR-inga hefur á löngum köflum verið ágæt í sumar en illa hefur gengið að koma tuðrunni yfir línuna. Sem dæmi má benda á fyrri leik liðanna en þar hafði KR mikla yfirburði í fyrri hálfleik en eftir að Breiðablik komst yfir í upphafi þess síðari var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi lenda. Skýrslan@KRreykjavik - @BreidablikFC pic.twitter.com/38UHEzqZAs— Besta deildin (@bestadeildin) April 26, 2022 Sá leikur kom sérstaklega á óvart þar sem Breiðablik spilaði töluvert einfaldari bolta en oft áður. Það virkaði heldur betur þar sem tvíeykið úr Mosfellsbæ – Ísak Snær Þorvaldsson og Jason Daði Svanþórsson – sáu um að tryggja stigin þrjú. Breiðablik mun eflaust leggja upp með stífari sóknarleik á Kópavogsvelli í kvöld enda mæta KR-ingar heldur vængbrotnir til leiks. Kristinn Jónsson og Grétar Snær Gunnarsson eru fjarri góðu gamni. Þá er spurning hversu leikfærir Pálmi Rafn Pálmason, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kjartan Henry Finnbogason eru. Kristinn Jónsson verður ekki með KR í kvöld.Vísir/Vilhelm Pálmi Rafn missti af leiknum gegn ÍA en spilaði svo allan leikinn gegn Stjörnunni á mánudaginn var. Arnór Sveinn var í byrjunarliðinu gegn ÍA, í fyrsta skipti í sumar, en þurfti að koma af velli. Hann spilaði svo síðustu mínúturnar gegn Stjörnunni. Kjartan Henry var svo tekinn af velli gegn Stjörnunni þegar KR vantaði mark en skömmu áður ku hann hafa beðist undan við að taka vítaspyrnu sem fór svo forgörðum. Þó Blikar hafi hikstað eftir að Besta deildin fór aftur af stað eftir landsleikjahlé þá minnti liðið heldur betur á sig gegn KA á mánudag. Nú er komið að því að kveða KR-grýluna endanlega í kútinn og sparka henni svo langt í burtu að hún sést aldrei aftur. Leikur Breiðabliks og KR hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Útsending hefst klukkan 19.00. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Breiðablik Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Sjá meira
Fyrir leikinn á Meistaravöllum undir lok apríl mánaðar höfðu KR-ingar haft gríðarlegt tak á grænklæddum Blikum. Fara þurfti aftur til 7. ágúst 2018 til að finna síðasta sigur Breiðabliks. Nú er öldin önnur og meira að segja hörðustu KR-ingar eiga erfitt með að sjá liðið ná í úrslit í kvöld. Á meðan Breiðablik hefur verið svo gott sem óstöðvandi í sumar, ef frá er talinn einn leikur á Hlíðarenda, þá hefur KR hikstað. Spilamennska KR-inga hefur á löngum köflum verið ágæt í sumar en illa hefur gengið að koma tuðrunni yfir línuna. Sem dæmi má benda á fyrri leik liðanna en þar hafði KR mikla yfirburði í fyrri hálfleik en eftir að Breiðablik komst yfir í upphafi þess síðari var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi lenda. Skýrslan@KRreykjavik - @BreidablikFC pic.twitter.com/38UHEzqZAs— Besta deildin (@bestadeildin) April 26, 2022 Sá leikur kom sérstaklega á óvart þar sem Breiðablik spilaði töluvert einfaldari bolta en oft áður. Það virkaði heldur betur þar sem tvíeykið úr Mosfellsbæ – Ísak Snær Þorvaldsson og Jason Daði Svanþórsson – sáu um að tryggja stigin þrjú. Breiðablik mun eflaust leggja upp með stífari sóknarleik á Kópavogsvelli í kvöld enda mæta KR-ingar heldur vængbrotnir til leiks. Kristinn Jónsson og Grétar Snær Gunnarsson eru fjarri góðu gamni. Þá er spurning hversu leikfærir Pálmi Rafn Pálmason, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kjartan Henry Finnbogason eru. Kristinn Jónsson verður ekki með KR í kvöld.Vísir/Vilhelm Pálmi Rafn missti af leiknum gegn ÍA en spilaði svo allan leikinn gegn Stjörnunni á mánudaginn var. Arnór Sveinn var í byrjunarliðinu gegn ÍA, í fyrsta skipti í sumar, en þurfti að koma af velli. Hann spilaði svo síðustu mínúturnar gegn Stjörnunni. Kjartan Henry var svo tekinn af velli gegn Stjörnunni þegar KR vantaði mark en skömmu áður ku hann hafa beðist undan við að taka vítaspyrnu sem fór svo forgörðum. Þó Blikar hafi hikstað eftir að Besta deildin fór aftur af stað eftir landsleikjahlé þá minnti liðið heldur betur á sig gegn KA á mánudag. Nú er komið að því að kveða KR-grýluna endanlega í kútinn og sparka henni svo langt í burtu að hún sést aldrei aftur. Leikur Breiðabliks og KR hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Útsending hefst klukkan 19.00. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Breiðablik Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Sjá meira