Innlent

Þrír greindust innanlands og allir í sóttkví

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
12
Vísir/Vilhelm

Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. Enginn greindist með veiruna á landamærum samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Í fyrradag greindust einnig þrír með veiruna innanlands og voru þeir einnig allir í sóttkví. Einn greindist með covid-19 á landamærum í fyrradag. Covid-smittölur verða næst uppfærðar á Covid.is á morgun, mánudaginn 3. maí.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×