„Eitthvað sem ég þurfti að gera fyrir mig sem íþróttakonu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2023 08:30 Hafdís Renötudóttir hefur verið einn allra besti markvörður Olís deildar kvenna undanfarin ár. Vísir/Hulda Margrét Íslandsmeistarar Vals styrktu liðið sitt heldur betur á dögunum þegar landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir ákvað að koma til Hlíðarendaliðsins frá Fram.
Hafdís hefur verið í hópi bestu markvarða deildarinnar undanfarin ár og hjálpaði Fram að verða Íslandsmeistari í fyrra. Það er ljóst að þetta er mikill styrkur fyrir Val og um leið áfall fyrir Framara. Svava Kristín Gretarsdóttir hitti Hafdísi og ræddi við hana um félagsskiptin. „Þetta var mjög erfið ákvörðun því Fram er uppeldisfélagið mitt. Það er alltaf erfitt að taka stórar ákvarðanir en ég fann að þetta er eitthvað sem ég þurfti að gera fyrir mig sem íþróttakonu og fyrir ferilinn minn,“ sagði Hafdís Renötudóttir. Vísir/Hulda Margrét „Ég fann alveg að ég þurfti áskorun og þyrfti að halda áfram minni vegferð í að verða góður leikmaður. Ég þurfti bara það sem er rétt fyrir mig og það fannst,“ sagði Hafdís. Hún er búin að vera lengi í Framliðnu og vinkonurnar hennar eru þar. Hvernig var að tilkynna stelpunum þetta? „Það var mjög erfitt. Ég var í þrjú ár í Fram og við unnum titla. Það var erfitt að tilkynna þetta og stjórninni líka en eins og ég segi þá þurfti ég að gera þetta,“ sagði Hafdís. Fram náði bara fjórða sætinu í deildarkeppninni og féll síðan út úr fyrstu umferð úrslitakeppninni og komst því ekki í undanúrslitin. Þetta voru mikil vonbrigði „Þetta voru mikil vonbrigði og sérstaklega fyrir mig persónulega. Ég vil ekki lenda í fjórða sæti en við gerðum okkar besta. Ég get ekki sagt bara neikvæða hluti um þetta. Við gerðum okkar besta og með fjórða sætinu erum við kannski á pari miðað við það sem við höfðum í höndunum. Þetta voru mikil vonbrigði,“ sagði Hafdís. Leitaði hugurinn ekkert erlendis hjá Hafdísi? Vísir/Hulda Margrét „Jú, ég fékk mörg tilboð frá erlendum liðum en ég tók ákvörðunina að vera heima. Þess vegna fór ég í Val af því að ég vil annað hvort spila um fyrsta sætið eða vera úti,“ sagði Hafdís. Hún hugsar enn um atvinnumennskuna. „Já, alltaf. Mér finnst að ég eigi heima úti og þannig get ég orðið besti leikmaðurinn sem ég get orðið. Með því að spila úti og fá meiri áskorun. Eins og staðan er í dag þá er ég heima og ég er ánægð með ákvörðunina að vera næstu tvö árin hjá Val. Þá get ég alla vega betrumbætt ofan á það sem ég hef í dag,“ sagði Hafdís. Ég vona að við vinnum alla titlana Valsliðið gæti orðið illviðráðanlegt á næstu leiktíð. „Já, ég vona það. Ég vona að við vinnum alla titlana. Ég hef spilað með mörgum af þessum Valsstelpum í landsliðinu og ég ef fulla trú á því að við náum að samstilla okkur mjög vel,“ sagði Hafdís. Einar Jónsson tók við liði Fram en vinur hans Ágúst Jóhannsson þjálfar Val. Hvað sagði Einar við því að hún hefði valið Gústa fram yfir hann. „Ég er mjög þakklát fyrir það að Einar var mjög kurteis og skilningsríkur. Ég er þakklát fyrir viðbrögð hans. Ég hef spilað undir stjórn Gústa í nokkur ár með landsliðinu og það hefur gengið mjög vel. Ég býst við því að það gangi enn betur með félagsliðinu,“ sagði Hafdís. Bubbi er akkúrat það sem ég þarf núna Hlynur Morthens, kallaður Bubbi, er markmannsþjálfari Valsliðsins og það hafði mikið að segja fyrir Hafdísi. „Bubbi er akkúrat það sem ég þarf núna. Það er algjör fengur að Bubbi fái að fljóta með og hann er ástæða fyrir því af hverju ég fer þangað,“ sagði Hafdís. Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir neðan. Klippa: Hafdís: Ég vona að við vinnum alla titlana
Olís-deild kvenna Valur Fram Mest lesið Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Sjá meira