Útskýra dularfullar sendingar frá Salómonseyjum

Pósturinn hefur sent út tilkynningu.
Pósturinn hefur sent út tilkynningu.

Borið hefur á því að undanförnu, að tilkynningar berist um dularfullar sendingar frá Salómonseyjum sem viðtakendur vita engin deili á.

„Við hjá Póstinum erum meðvituð um málið og góðu fréttirnar eru þær að hér er ekkert hættulegt á ferð. Pakkar frá Ali Express eru sendir í gegnum Salómonseyjar þar sem það er ódýrasta leiðin til Íslands,“ útskýrir Kristín Inga Jónsdóttir, markaðsstjóri Póstsins, í tilkynningu.

„Ef einhverjir hafa keypt vöru á Ali Express á síðastliðnum 1-2 mánuðum eru allar líkur á að um sé að ræða pakkann sem viðkomandi pantaði,“ segir Kristín.

Mikilvægt sé að passa upp á að bera saman sendingarnúmerið sem viðkomandi fékk sent frá Ali Express og svo sendingarnúmerið í tilkynningunni, til að ganga úr skugga um að sendingin sé sú rétta.

Tómir pakkar í einhverjum tilvikum

„Ef viðkomandi hefur fengið tilkynningu um pakka frá Salómonseyjum en er ekki að bíða eftir pakka frá Ali er gott að hafa samband við þjónustuver Póstsins og við skoðum málið,“ er haft eftir Kristínu í tilkynningunni.

Í einhverjum tilvikum sé um tóma pakka að ræða. Fylgst sé sérstaklega vel með því. Ef grunur leikur á því að pakkar séu tómir eru þeir teknir úr umferð.

„Ef viðskiptavinir sjá á Mínum síðum Póstsins eða í appinu að sendingin sem þeir hafa fengið tilkynningu um er óvenju létt gæti verið gott að hafa samband við þjónustuverið. Við mælum raunar með því að viðskiptavinir okkar hafi samband við þjónustuver Póstins ef þeir eru að fá dularfullar sendingar frá Salómónseyjum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert