Milljarður í nýja heilsugæslustöð

Mikil þörf er á bættri aðstöðu fyrir heilsugæsluþjónustu á svæðinu.
Mikil þörf er á bættri aðstöðu fyrir heilsugæsluþjónustu á svæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ sem á að þjóna um 15.000 íbúum. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina nemur rúmum einum milljarði kr. 

Fram kemur á vef heilbrigðisráðuneytisins, að húsnæði stöðvarinnar verði um 1.350 fermetrar.

Naumur húsakostur hefur staðið þjónustunni fyrir þrifum

Ríkissjóður fjármagnar framkvæmdina að fullu en Reykjanesbær leggur til lóðina og liggur fyrir ákvörðun um að heilsugæslustöðin verði reist við Tjarnarbraut/Njarðarbraut. Mikil þörf er á bættri aðstöðu fyrir heilsugæsluþjónustu á svæðinu því naumur húsakostur stendur þjónustunni fyrir þrifum og hefur þurft að sinna hluta heilsugæsluþjónustunnar í bráðabirgðaaðstöðu við sjúkrahús Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, að því er segir í tilkynningu.

Íbúum fjölgað langt umfram spár

„Síðustu ár hefur íbúum í Reykjanesbæ fjölgað langt umfram spár, eða um 6% á ári að jafnaði. Núverandi heilsugæslustöð í Reykjanesbæ er starfrækt í 730 fermetra húsnæði sem hýsir læknamóttöku, hjúkrunarmóttöku, heilsueflandi móttökur, heilsugæsluvakt, ungbarnavernd og sykursýkismóttöku. Til viðbótar er hluti starfseminnar á sjúkrahúsinu á um 112 fermetrum. Þessari aðstöðu er ætlað að þjóna um 22.000 íbúum sem skráðir eru hjá heilsugæslu Reykjanesbæjar. Samkvæmt frumathugun Framkvæmdasýslu ríkisins er nauðsynlegt að ný heilsugæslustöð geti þjónustað að lágmarki 15.000 íbúa, til viðbótar núverandi heilsugæslustöð þar sem sinna má um 8.000 íbúum. Þá verði sú þjónusta sem nú er veitt inni á sjúkrahúsinu færð inn á heilsugæslustöð þar sem hún á heima,“ segir ráðuneytið.

Sem fyrr segir nemur áætlaður kostnaður við byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í Innri-Njarðvík rúmum einum milljarði króna. Áformað er að ráðast í alútboð á framkvæmdinni en þannig má m.a. gera ráð fyrir skemmri framkvæmdatíma. Miðað er við að hægt verði að taka nýja heilsugæslustöð í notkun í lok árs 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka