Solskjær segir að Man Utd verði að sýna ábyrgð og raunsæi í peningamálunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2021 14:00 Ole Gunnar Solskjær var léttur og kátur á æfingu með Manchester United í vikunni. Getty/Matthew Peters Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur varað stuðningsmenn félagsins við því að búast við einhverju eyðslufylleri í nýja leikmenn í sumar.
Manchester City er búið að stinga af á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og mun vinna sinn þriðja Englandsmeistaratitil á fjórum árum. Nágrannarnir í City væru þá búnir að vinna fjóra titla síðan að United varð síðast meistari vorið 2013. Manchester United er líklegt til að taka annað sætið en er engu að síður langt á eftir City. Það búast því margir við því að United kaupi stjörnuleikmenn í sumar til að reyna að brúa bilið. Solskjær varar hins vegar stuðningsmenn félagsins við slíkum væntingum. ESPN segir frá. Ole Gunnar Solskjaer admits the club is unlikely to spend big in the upcoming summer transfer window. pic.twitter.com/FLrKFSTEYc— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 3, 2021 „Heimsfaraldurinn hefur haft áhrif á alla í fótboltanum. Það eru allir að missa af innkomu og þetta gæti haft áhrif á okkur líka,“ sagði Ole Gunnar Solskjær. „Við verðum að vera raunsæ og sýna ábyrgð í því hvernig við högum okkur, bæði inn á vellinum sem og á markaðnum. Það er verið að laga til á æfingasvæðinu og á leikvanginum og við verðum að horfa á alla heildarmyndina,“ sagði Solskjær. Solskjaer was asked if he's been impressed by Man United this season. pic.twitter.com/deGVHvPYKk— ESPN FC (@ESPNFC) March 2, 2021 „Hvar getum við eytt peningnum? Og hvað er mikið til? Þetta er bara raunveruleikinn í dag. Hann hefur breyst,“ sagði Solskjær. „Ég held að það verði bara minna og minna um leikmannakaup í fótboltaheiminum vegna allra þessara breytinga,“ sagði Solskjær. Hann býst jafnvel við því að treysta enn meira á unga leikmenn úr akademíunni á næsta tímabili. Erlendir fjölmiðlar telja sig samt hafa heimildir fyrir því að Solskjær fái pening til að kaupa nýja leikmenn í sumar. Ársskýrsla félagsins verður opinberuð á morgun og þá kemur betur í ljós hvaða áhrif faraldurinn hefur í raun haft á rekstur Manchester United. „Við erum alltaf að leita leiða til að gera hópinn okkar betri, auðvitað. Við erum alltaf að leita að betri leikmönnum,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.
Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Sjá meira