Lék sinn fyrsta leik fyrir danska stórliðið

Ísak Bergmann Jóhannesson lék sinn fyrsta leik með FC København.
Ísak Bergmann Jóhannesson lék sinn fyrsta leik með FC København. mbl.is/Kristinn Magnússon

FC København hafði betur gegn Randers á útivelli, 2:0, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. William Bøving kom København yfir á 12. mínútu og Jens Stage bætti við marki á fyrstu mínútu seinni hálfleiks.

Ísak Bergmann Jóhannesson lék sinn fyrsta leik fyrir København er hann kom inn á sem varamaður á 68. mínútu, en hann kom til félagsins frá Norrköping í Svíþjóð á dögunum. Andri Fannar Baldursson kom inn á sem varamaður á 83. mínútu.

København er í toppsæti deildarinnar með 20 stig eftir átta leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert