Sonja Lind E. Eyglóardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Þingflokks Framsóknar.
Fram kemur í tilkynningu á heimasíðu flokksins að hún hafi lokið BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og fengið þá verðlaun Viðskiptaráðs Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi. Sonja útskrifast með ML-gráðu í lögfræði frá sama skóla um helgina.
„Sonja hefur starfað sem starfsmaður þingflokks Framsóknar frá árinu 2020. Áður en hún kom til starfa fyrir þingflokk Framsóknar vann hún hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, þá hefur Sonja víðtæka reynslu í hótel- og veitingarekstri. Sonja hefur tekið þátt í félagsstörfum fyrir Framsókn, hún hefur m.a. verið formaður Framsóknarfélags Borgarfjarðar og Mýra, þá situr hún í fræðslu og kynningarnefnd Framsóknar og Velferðarnefnd Borgarbyggðar,“ segir í tilkynningunni.
Sonja er 41 árs, gift Pavle Estrajher umhverfis- og náttúrufræðingi og er búsett í Borgarnesi.