Fótbolti

Aron lagði upp sigur­mark Sirius

Aron Guðmundsson skrifar
Aron Bjarnason, leikmaður Sirius
Aron Bjarnason, leikmaður Sirius Sirius

Aron Bjarna­son, leik­maður sænska úr­vals­deildar­liðsins Sirius, lagði upp sigur­mark liðsins í leik gegn Bromma­pojkarna í dag.

Aron var í byrjunar­liði Sirius í dag en liðið lenti undir á 23. mínútu þegar að Os­car Pet­ters­son kom boltanum í netið fyrir Bromma­pojkarna.

Leik­menn Sirius náðu hins vegar að svara fyrir sig fjórum mínútum síðar þegar að Edi Sylisu­fa­j kom boltanum í netið eftir stoð­sendingu frá Daniel Stens­son.

Það var síðan á 64. mínútu þegar að Tashreeq Matt­hews tryggði Sirius stigin þrjú með marki eftir stoð­sendingu frá Aroni og loka­tölur leiksins því 2-1.

Með sigrinum spyrnir Sirius sér upp úr fall­sæti og situr liðið nú í 13. sæti sænsku úr­vals­deildarinnar með 8 stig eftir tíu leiki. Liðin þrjú fyrir neðan eiga þó öll leik til góða á Sirius.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×