Leikmaður Stjörnunnar í bann

Dagur Kár Jónsson er kominn í eins leiks bann.
Dagur Kár Jónsson er kominn í eins leiks bann. mbl.is/Óttar Geirsson

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur úrskurðað Dag Kár Jónsson, leikmann Stjörnunnar, í eins leiks bann vegna brottrekstrar hans gegn Keflavík í Subway-deildinni í síðasta mánuði.

Degi var vikið af velli fyrir hegðun sína í leiknum, eins og liðfélaga hans Hlyni Bæringssyni og þjálfaranum Arnari Guðjónssyni.

Arnar var einnig úrskurðaður í bann, en Hlynur slapp með áminningu. Var Arnar ekki á hliðarlínunni er Stjarnan vann ÍR í síðustu umferð, 94:76.

Dagur verður ekki með liðinu er liðið leikur útileik við Njarðvík klukkan 20:15 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert