Kristján Jóhannsson hefur háð harða baráttu við krabbamein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. maí 2023 09:02 Kristján segist hafa þurft að leggja sönginn á hilluna í meðferðinni, enda fagmaður sem gefur ekkert eftir þegar kemur að gæðum. Gulli Helga Kristján Jóhannsson óperusöngvari greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli í september síðastliðnum. Hann hefur nú undirgengist hormóna- og lyfjameðferð og segist læknaður. Hann gat ekki sungið á meðan meðferðunum stóð en stefnir á að vera kominn í fyrra form eftir nokkrar vikur.
Frá þessu greindi Kristján í viðtali í Bítinu í morgun. Kristján segist hafa fengið mikið sjokk þegar hann fékk tíðindin. „Við erum búin að gera þetta, þökk sé konunni minni elskulegu, nánast upp úr fimmtugu að fara í allar þessar rannsóknir,“ sagði Kristján og átti þar við blóðrannsóknir og krabbameinsskimanir. Árið áður hafði hann farið í ristilspeglun og blóðprufu, þar sem allt reyndist eðlilegt og svokölluð PSA-gildi, sem gefa vísbendingu um blöðruhálskirtilskrabbamein, á bilinu sjö eða átta. Í haust reyndust þau hins vegar vera komin í 20. Viðtalið í heild má hlusta á hér fyrir neðan. Kristján segist hafa fengið góðar móttökur í heilbrigðiskerfinu og ekki hafi skemmt fyrir að læknirinn hans reyndist vera að norðan, þaðan sem Kristján er sjálfur. Hórmónameðferðin sem byrjað var á hafi hins vegar verið djöfulleg, ekki síst þar sem Kristján sé „vel giftur og þetta er búið að vera óskaplega gaman í fjörtíu ár,“ sagði hann. Þá var hann nýbúinn að missa 20 kíló. „Það fór að koma utan á mig aftur og leiði og mér fannst lífið og tilveran bara ömurleg,“ segir hann um meðferðina. „Fyrir mig er að borða og syngja og elskast það sem skiptir máli í lífinu.“ Aftur farinn að pissa „eins og stóðhestur“ Kristján hóf lyfjameðferð í janúar og hefur nú lokið henni. Á meðan henni stóð hafi hann í raun verið hálfur maður. „Þetta er mikið eitur og það þarf mikið eitur til að drepa þetta niður. Nú þetta var gert mjög skilmerkilega allt saman og ég er á alls kyns hliðarmeðölum líka, þannig að maður leggist ekki bara í rúmið,“ sagði hann. „En maður er ekkert að væla; þetta heldur manni hugsanlega á lífi og mjög líklega. Og mig langar að lifa og þá bara hlýðir þú og ert stilltur.“ Kristján segist bókstaflega hafa fundið fyrir batanum en eftir meðferðina hafi hann aftur farið að geta sofið heila nótt án þess að þurfa að fara á salernið og pissað bara um morguninn, „eins og stóðhestur“. Hann segist þó einnig hafa fundið að það muni taka lengri tíma að endurheimta fulla stjórn á röddinni; hann hafi til að mynda átt að syngja fyrir Ólaf Ragnar Grímsson áttræðan um helgina en neyðst til að segja sig frá því. „Ég myndi segja að ég sé laus við þetta, já,“ segir hann spurður að því hvort hann sé læknaður af krabbameininu. „Ég finn að þessi líffæri svara mér en það vantar þróttinn,“ segir hann um sönginn, sem krefst líkamlegrar heilsu. Kristján stefnir ótrauður á að ljúka þeim verkefnum sem hann hefur verið bókaður í en hann mun meðal annars koma fram í Frankfurt og Vín í nóvember.
Heilbrigðismál Tónlist Bítið Tengdar fréttir Jóladagatal Vísis: Atriði sem lífgar pottþétt upp á jólaboðið 15.desember er runninn upp. Þessi fimmtudagsmorgun var óneitanlega í kaldari kantinum enda sannkölluð kuldatíð gengin í garð. Það þýðir þó ekki að við ætlum að láta deiga síga í Jóladagatali Vísis heldur þvert á móti. Lag dagsins er hin ódauðlega aría Nessun Dorma í stórkostlegum flutningi Kristjáns Jóhannssonar. 15. desember 2022 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Engin veit hver hún er“ Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Fleiri fréttir Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sjá meira
Jóladagatal Vísis: Atriði sem lífgar pottþétt upp á jólaboðið 15.desember er runninn upp. Þessi fimmtudagsmorgun var óneitanlega í kaldari kantinum enda sannkölluð kuldatíð gengin í garð. Það þýðir þó ekki að við ætlum að láta deiga síga í Jóladagatali Vísis heldur þvert á móti. Lag dagsins er hin ódauðlega aría Nessun Dorma í stórkostlegum flutningi Kristjáns Jóhannssonar. 15. desember 2022 07:01