Skynsamlegt fyrir stuðningsmenn hvalveiða að sýna meiri auðmýkt Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. júní 2023 12:06 Andrés Jónsson almannatengill. Vísir/Vilhelm Almannatengill telur að hvalveiðar séu að verða pólitískara mál en áður og segir að fyrir nokkrum áratugum hefði þótt óhugsandi að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur hvalveiðum. Ný könnun Maskínu bendir þó einmitt til þess að sú sé raunin. Hann telur að þeir sem stundi og styðji veiðarnar ættu að sýna andstæðingum veiðanna meiri auðmýkt.
Samkvæmt könnun Maskínu um afstöðu þjóðarinnar til hvalveiða eru 51 prósent andvíg veiðunum, en könnunin var gerð í síðasta mánuði. Í mars 2019 var hlutfall andvígra nokkuð lægra, eða 42 prósent. Svarendur voru þúsund talsins. Andrés Jónsson almannatengill segir ljóst að andstaða við hvalveiðar fari vaxandi, óháð vísindalegum rökum að baki veiðunum. „Ef við horfum aftar en fjögur ár, kannski 20 til 40 ár, þá var það hugmynd sem hefði þótt nánast óhugsandi,“ segir Andrés. Sjá megi á neyslumynstri fólks að viðhorf til landbúnaðar og veiða sé að breytast. Sterkar skoðanir sé þó að finna beggja megin borðsins. „Þetta eru harðir andstæðingar og harðir stuðningsmenn, og svo hefur þetta aðeins verið fólk sem skiptist á milli þess að vera sammála síðasta ræðumanni. En ég held að massinn sé að færast og þessi könnun staðfestir það.“ Stuðningsmenn hvalveiða sýni auðmýkt Hvalveiðar séu að verða pólitískara mál en þær hafi verið hingað til. „Þannig að það megi alveg búast við því að þetta komi til tals í kosningum og einhverjir flokkar muni lofa því að veiða ekki hvali.“ Andrés bendir á að engin auðlindagjöld séu tekin af hvalveiðum, en sjá megi fyrir sér að sú spurning muni vakna hjá andstæðingum hvers vegna svo sé. Slíkt fyrirkomulag myndi þó ekki endilega mýkja hörðustu andstæðingana. „Ég held að það sé allavega skynsamlegt fyrir þá sem styðja eða stunda hvalveiðar að vera örlítið auðmjúkari og reyna að mæta þessum sjónarmiðum. Ég er ekki að segja að harðir andstæðingar hvalveiða séu komnir í algjöran meirihluta, en sympatía þjóðarinnar er að færast,“ segir Andrés. Yngra fólk í Reykjavík líklegast til að vera á móti Mestu andstöðuna við hvalveiðar er að finna í Reykjavík, eða rúm fimmtíu prósent, en minnst á Austurlandi, eða þrjátíu og átta prósent. Þá er yngra fólk almennt andvígara hvalveiðum en það eldra. Niðurstöður könnunarinnar leiða einnig í ljós að 54 prósent telja nú að hvalveiðar hafi neikvæð áhrif á ferðaþjónustu hér á landi, en það hlutfall stóð í 51 prósenti 2019. Hlutfall þeirra sem telja að hvalveiðar hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna stendur hins vegar í stað á tímabilinu, í átta prósentum. Í tengdum skjölum hér að neðan má nálgast niðurstöður könnunarinnar í heild sinni. Tengd skjöl Könnun_MaskínuPDF813KBSækja skjal
Hvalveiðar Skoðanakannanir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Innlent Fleiri fréttir Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Sjá meira