Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Kjartan Kjartansson skrifar 4. desember 2020 16:46 Frá Landsrétti í Kópavogi. Vísir/Vilhlem Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag.
Maðurinn var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars í fyrra. Dómurinn taldi að framburður stúlkunnar hefði ekki þá stoð í öðrum sönnunargögnum sem voru lögð fram í málinu sem nægðu til þess að sakfella manninn gegn eindreginni neitun hans. Talið var að framburður mannsins hefði verið stöðugur og að ekkert hefði komið fram sem rýrði sönnunargildi hans. Í dómi Landsréttar kom fram að við skýrslutöku í Barnahúsi hafi stúlkan þurft mikla hvatningu frá spyrli og að hún hefði oft gefið takmörkuð og stundum óljós svör. Þá hefði nokkuð borið á leiðandi spurningum um atriði sem fyrri svör hennar hefðu ekki gefið sérstakt tilefni til þess að fara út í. Framburður stúlkunnar fyrir Landsrétti var aftur á móti talinn skýr og að ekkert hefði komið fram sem rýrði sönnunargildi hans. Það breytti þó ekki niðurstöðu héraðsdóms um að sýkna skyldi manninn vegna skorts á öðrum sönnunargögnum. Staðfesti Landsréttur því sýknuna. Í ákæru hafði manninum verið gefið að sök að hafa áreitt stúlkuna kynferðislega á sameiginlegu heimili þeirra á árunum 2013 til 2015. Hann hafi meðal anars átt að hafa snert kynfæri hennar og brjóst og í eitt skipti haft við hana kynferðismök önnur en samræði með því að sleikja kynfæri hennar. Maðurinn neitaði staðfastlega sök. Stúlkan, þá tólf ára gömul, lýsti því í Barnahúsi að maðurinn hefði einhvern tímann sagt við hana að þetta væri „litla leyndarmálið“ þeirra og að hún ætti ekki að segja móður sinni eða börnum hans frá því.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira