Nýjar skipulagsreglur fyrir Keflavíkurflugvöll hafa verið samþykktar og taka gildi frá og með deginum í dag. Tilgangur þeirra er að tryggja öryggi á og við Keflavíkurflugvöll og hafa að geyma fyrirmæli um starfsemi og starfsheimildir innan flugvallarins, reglur um hindranafleti og fleira. Skipulagsreglurnar eru settar í samræmi við heimild í 59. gr. laga um loftferðir, nr. 60 frá 1998.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Í reglunum er m.a. að finna fyrirmæli um:
Þá kemur fram, að með reglunum séu hindranafletir vallarins festir í sessi fyrir skipulag með takmörkunum á hæðum húsa, trjáa og annarra mannvirkja á tilteknum svæðum. Skilgreining hindranaflata flugvallarins séu samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum sem Ísland er skuldbundið af og hafa verið innleiddar í íslenskan rétt með lögum nr. 60/1998 um loftferðir og reglugerð 75/2016 um flugvelli.