Handbolti

Heimasíða HSÍ ekki sammála sjálfri sér um hvaða lið sé á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KA/Þór stelpurnar fagna hér í vetur en þær eiga að vera í efsta sæti Olís deildar kvenna fyrir lokaumferðina.
KA/Þór stelpurnar fagna hér í vetur en þær eiga að vera í efsta sæti Olís deildar kvenna fyrir lokaumferðina. Vísir/Hulda Margrét

Spennan er svo mikil í Olís deild kvenna í handbolta fyrir lokaumferðina að bæði lið Fram og KA/Þór sitja á toppnum á heimasíðu HSÍ. Það fer bara eftir því hvar þú smellir hvort liðið er í toppsætinu.

Það eru misvísandi skilaboð í gangi á úrslitasíðu Handknattleikssambands Íslands. KA/Þór og Fram eru jöfn að stigum á toppi Olís deildar kvenna fyrir lokaumferðina en heimasíða HSÍ er ekki sammála sjálfri sér í hvor þeirra sé í raun á toppnum.

Þegar smellt er á Olís deild kvenna í mótavef HSÍ þá má kemur upp yfirlit yfir næstu leiki og þar er einnig staðan í deildinni. Í þeirri stigatöflu situr Fram í efsta sætinu.

Staðan á fyrstu síðu Olís deildar kvenna. Þar er Fram í efsta sætið.Skjámynd/HSÍ

Þegar smellt er „Sjá meira“ kemst maður inn á mótið þar sem er hægt að sjá úrslit allra leikja. Þar er líka stigatafla deildarinnar en á henni er KA/Þór í toppsætinu.

Samkvæmt reglum HSÍ þá fer röð liða eftir innbyrðis leikjum ef liðin eru jöfn. KA/Þór vann fyrri leikinn á móti Fram og er því réttilega í efsta sætinu.

Framkonur eru aftur á móti með mun betri markatölu en KA/Þór konur og væru því í efsta sætinu ef farið væri eftir gömlu reglunum þar sem markatala réði röð liða ef þú væri jöfn.

Fyrir þá sem fara ekki alla leið inn á úrslitasíðu Olís deildar kvenna þá verða þeir að átta sig á því að staðan á opnunarsíðu mótsins er ekki rétt. Fram er ekki í efsta sætinu heldur KA/Þór.

Það þýðir að þegar Fram fær KA/Þór í heimsókn í lokaumferðinni um næstu helgi þá nægir KA/Þór jafntefli til þess að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

KA/Þór á aftur á móti að vera í efsta sætinu eins og kemur fram þegar menn fara alla leið inn í mótið á heimasíðu HSÍ.Skjámynd/HSÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×