Innlent

Hætta við þéttingu byggðar við Bú­staða­veg

Atli Ísleifsson skrifar
Áberandi andstaða kom fram við tillögur um uppbyggingu meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ í Gallupkönnuninni sem unnin var fyrir Rekjavíkurborg.
Áberandi andstaða kom fram við tillögur um uppbyggingu meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ í Gallupkönnuninni sem unnin var fyrir Rekjavíkurborg. Reykjavíkurborg

Hætt hefur verið við hugmyndir um þéttingu byggðar meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, en viðhorf til vinnutillagna hverfisskipulags Reykjavíkur fyrir Háaleiti-Bústaði voru kortlögð í Gallup könnun og voru niðurstöðurnar kynntar í dag.

„Nokkur meirihluti er andvígur ýmsum vinnutillögum hverfisskipulags í Háaleiti-Bústöðum sem hafa verið í kynningu frá því í október. Áberandi andstaða kom fram við tillögur um uppbyggingu meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ og við Miklubraut og Háaleitisbraut og verður þétting við Bústaðaveg lögð til hliðar. Góður stuðningur var hinsvegar við ýmsar aðrar tillögur hverfisskipulagsins, s.s. um grænar áherslur við hitaveitustokk, vistlok yfir Kringlumýrarbraut og heimildir til byggingu aukahæðar á fjölbýlishús.“

Andstaða meðal íbúa

Í bókun meirihlutans í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar eftir kynningu á könnuninni í dag er umræðunni sem hafi átt sér stað um vinnutillögur að hverfisskipulagi Háaleitis og Bústaða fagnað. 

„Ljóst er að tillögur að þéttingu byggðar meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ hafa mætt andstöðu meðal margra íbúa í hverfinu. Mikilvægt er að hlusta á þessar raddir íbúa og réttast er að leggja þessar hugmyndir um þéttingu við Bústaðaveg til hliðar og leita annarra lausna sem byggja á breiðari sátt og draga úr umferðarhraða, bæta hljóðvist og tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu eins og kallað hefur verið eftir,“ segir í bókuninni.

Unnið að nýjum tillögum

Lagt er til að unnið verði úr athugasemdum og niðurstöðum Gallup könnunar og netsamráðs með áherslu á að skoða umdeild atriði. Sérstök áhersla verði á afmarkað þróunarsvæði á Bústaðavegi við Grímsbæ. Stefnt er að því að kynna nýjar tillögur sem fyrst.

Þegar spurt var um hugmyndir um uppbyggingu meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ var rúmur helmingur svarenda andvígur hugmyndunum, eða 58 prósent, og um þriðjungur hlynntur. 

„Sama var uppi á teningnum þegar spurt var um tillögur að uppbyggingu meðfram Miklubraut og Háaleitisbraut en rétt um helmingur var andvígur hugmyndunum en 35% hlynnt. Meirihluti sagðist þó hlynntur uppbyggingu við Miklubraut og Háaleitisbraut ef Miklabraut væri sett í stokk undir Háaleitið.

Fjölbýlishús - nýbyggingar, aukahæðir og lyftuhús

Í könnuninni var spurt um viðhorf til hugmynda sem kynntar höfðu verið í vinnutillögum hverfisskipulagsins um að heimila nýbyggingar á stórum og lítið nýttum fjölbýlishúsalóðum á nokkrum stöðum í borgarhlutanum. Nánast jafnt hlutfall svarenda var hlynnt hugmyndunum og andvígt, þ.e. 38,5% hlynnt en 39% andvíg. Þá voru 45% hlynnt því að húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa yrði heimilt að byggja aukahæð ofan á húsin og koma fyrir lyftu til að bæta aðgengi. 30% voru andvíg.

Grænar áherslur

Spurt var um viðhorf til grænna áherslna í vinnutillögunum, þ.e. um uppbyggingu grænna dvalarsvæða meðfram hitaveitustokknum og lagfæringu hans sem gönguleiðar. Í vinnutillögum hverfisskipulags er jafnframt lagt til að stokkurinn verði hverfisverndaður sem borgarminjar. Mikill stuðningur var við þessar tillögur, eða um 81% en einungis um 5% andvíg. Svipaða sögu er að segja um stuðning við tillögur um vistlok (gróðurbrú) yfir Kringlumýrarbraut við Veðurstofuhæð en 71% sagðist hlynnt hugmyndunum en 11% andvíg. Vistlok á þessum stað myndi búa til græna tengingu á milli hverfanna sitthvoru megin við Kringlumýrarbraut, bæta göngu- og hjólatengingar og draga úr ónæði frá þungri umferð,“ segir í tilkynningu á vef bborgarinnar.

Nánar má lesa um málið af vef Reykjavíkurborgar.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×