Skýrsla tekin af Ivönku Trump vegna fjármálamisferlismáls Kjartan Kjartansson skrifar 4. desember 2020 11:01 Ivanka Trump (t.h.) með eiginmanni sínum Jared Kushner. Dómsmálaráðherra Washington-borgar stefndi henni, stjúpmóður hennar Melaniu og Thomas Barrack, nánum vini föður hennar, um gögn vegna fjárútláta embættistökunefndarinnar árið 2017. AP/Patrick Semansky Lögmenn frá dómsmálaráðherra Washington-borgar tóku skýrslu af Ivönku Trump, dóttur fráfarandi Bandaríkjaforseta og ráðgjafa hans, í tengslum við málsókn vegna meints misferlis með framlög til nefndar sem undirbjó innsetningarathöfn Trump árið 2017.
Innsetningarnefnd Trump sem skipulagði hátíðarhöld í kringum embættistöku Trump í Washington-borg 20. janúar árið 2017 safnaði meira fé en nokkur slík nefnd í sögunni. Dómsmálaráðherrann í borginni heldur því fram að nefndin hafi misfarið með fjármunina sem bakhjarlar Trump létu af hendi rakna. Slíkar nefndir eru reknar sem sjálfseignarstofnanir. Karl Racine, dómsmálaráðherrann, telur að meira en ein milljón dollara, jafnvirði meira en 125 milljóna íslenskra króna, sem nefndin greiddi Trump-hótelinu í Washington-borg fyrir leigu á veislusal hafi verið hluti af áætlun um að „ofgreiða stórlega“ til að fóðra vasa fjölskyldu forsetans, að sögn AP-fréttastofunnar. Nefndarmenn eiga að hafa átt í samráði við stjórnendur hótelsins og Trump-fjölskylduna um þetta. „Lög svæðisins kveða á um að félög sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni skuli nota fjármuni sína í opinber markmið sín, ekki til þess að einstaklingar eða fyrirtæki hagnist á þeim. Í þessu máli sækjumst við eftir því að endurheimta fjármuni sjálfseignastofnunarinnar sem var veitt á óeðlilegan hátt til fyrirtækja Trump-fjölskyldunnar,“ segir Racine sem er demókrati. Segist hafa látið rukka „sanngjarnt markaðsverð“ Alan Garten, lögmaður Ivönku Trump, fullyrðir að eina aðkoma hennar að málinu hafi verið að hafa milligöngu um samskipti á milli málsaðilanna og að skipa hótelinu að rukka „sanngjarnt markaðsverð“ fyrir þjónustu sína. Trump segist sjálf hafa varið meira en fimm klukkustundum í að gefa skýrslu þar sem hún var spurð út í verðskrá Trump-hótelsins í kringum embættisinnsetninguna. „Ég deildi með þeim tölvupósti frá því fyrir fjórum árum þar sem ég sendi hótelinu fyrirmæli um að rukka „sanngjarnt markaðsverð“ sem hótelið svo gerði. Þessi „rannsókn“ er önnur birtingarmynd pólitískrar hefnigirni og sóun á fjármunum skattgreiðenda,“ tísti forsetadóttirin. pic.twitter.com/DERU9YJLcL— Ivanka Trump (@IvankaTrump) December 3, 2020 Áður hefur komið fram að umdæmissaksóknarar í New York rannsaki hvort að Trump-fyrirtækið hafi notað ráðgjafargreiðslur til Ivönku Trump til þess að lækka skattbyrði sína á ólögmætan hátt. Hún hefur einnig afskrifað þá rannsókn sem pólitíska atlögu að sér.
Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Greiðslur til Ivönku Trump til rannsóknar í New York Skattaafskriftir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, eru nú viðfangsefni tveggja rannsókna í New York. Rannsóknirnar beinast meðal annars að ráðgjafargreiðslum sem virðast hafa runnið til Ivönku Trump, dóttur forsetans. 20. nóvember 2020 10:17 Eiga Ivanka og Jared afturkvæmt til New York? „[Forsetinn] var svo hræðilegur og ól á svo mikilli sundrung varðandi New York; sagði að borgin væri „martröð“ og að hún væri „tóm“ og búin að vera. Engin hérna mun gleyma því. Að snúa aftur eftir allt sem hann hefur sagt, það á ekki eftir að ganga.“ 14. nóvember 2020 23:31 Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. 28. september 2020 10:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Skotárás við heimili Drake Erlent Fleiri fréttir Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Sjá meira
Greiðslur til Ivönku Trump til rannsóknar í New York Skattaafskriftir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, eru nú viðfangsefni tveggja rannsókna í New York. Rannsóknirnar beinast meðal annars að ráðgjafargreiðslum sem virðast hafa runnið til Ivönku Trump, dóttur forsetans. 20. nóvember 2020 10:17
Eiga Ivanka og Jared afturkvæmt til New York? „[Forsetinn] var svo hræðilegur og ól á svo mikilli sundrung varðandi New York; sagði að borgin væri „martröð“ og að hún væri „tóm“ og búin að vera. Engin hérna mun gleyma því. Að snúa aftur eftir allt sem hann hefur sagt, það á ekki eftir að ganga.“ 14. nóvember 2020 23:31
Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. 28. september 2020 10:21