Án viðeigandi aðstoðar muni Navalní deyja

Alexei Navalní við réttarhöldin í febrúarmánuði.
Alexei Navalní við réttarhöldin í febrúarmánuði. AFP

Læknar rússneska stjórnarandstæðingins Alexeis Navalnís segja að hann muni „deyja á næstu dögum“ ef hann fái ekki viðeigandi aðstoð. Þeir segja að nýlegar blóðprufur bendi til þess að hann gæti fengið hjartaáfall eða nýrnabilun hvenær sem er. 

BBC greinir frá.

Navalní hefur verið í hungurverkfalli síðustu 18 daga til þess að krefjast viðeigandi meðferðar við miklum bakverkjum og dofa í fótum. 

Navalní er einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Navalní var fangelsaður í febrúarmánuði fyrir gamlar kærur vegna fjársvika. 

Biden segir ástand Navalnís ósanngjarnt

Fjórir læknar, þar á meðal einkalæknir hans, Anastasia Vasilyeva, hafa skrifað stjórnendum fangelsisins sem Navalní dvelur í og beðið um leyfi til að hitta hann. 

Í bréfinu, sem Vasilyeva birti á samfélagsmiðlinum Twitter, sögðu læknarnir að kalíum í líkama Navalnís væri nú hættulega lítið. 

Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í samtali við blaðamenn í dag að læknisfræðilegt ástand Navalnís væri „algjörlega ósanngjarnt og óviðeigandi“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert