Innlent

Tillögum að fiskeldi í Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði skilað inn

Andri Eysteinsson skrifar
Fáskrúðsfjörður á fallegum sumardegi.
Fáskrúðsfjörður á fallegum sumardegi. Vísir/Vilhelm

Tillögur Hafrannsóknarstofnunar að afmörkun fiskeldissvæða í tveimur fjörðum á Austurlandi eru komnar á borð skipulagsstofnunar. Um er að ræða Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð en ákvörðun Hafrannsóknarstofnunnar um eldissvæði er forsenda þess að sjávarútvegsráðherra geti úthlutað svæðum til fiskeldis í sjó.

Þar sem að ekki liggur fyrir strandssvæðisskipulag í fjörðunum mun Skipulagsstofnun kynna tillögurnar opinberlega og veita kost á því að skila inn athugasemdum við tillöguna.

Þá gefst sveitarfélögum og þeim sem búa yfir þekkingu á náttúrufari og nýtingu svæðisins tækifæri til að koma athugasemdum sínum á framfæri bréfleiðis eða með tölvupósti.

Myndir sem fylgja tillögunum að eldissvæðunum má sjá hér að neðan en tillöguna að svæði í Fáskrúðsfirði má sjá hér og tillögu vegna Stöðvarfjarðar hér.

Tillaga vegna StöðvarfjarðarSkipulagsstofnun

Í Stöðvarfirði hefur áætlað burðarþol verið 7.000 tonn og er gert ráð fyrir eldi eins árgangs í senn og tveggja ára eldisferli í firðinum sunnanverðum. Sett verða út stór seiði og stefnt er að því að hámarkslífmassi sé í firðinum í um 7 mánuði á seinna ári eldisin

Tillaga vegna FáskrúðsfjarðarSkipulagsstofnun

Í Fáskrúðsfirði var burðarþol fjarðarins áætlað 15.000 tonn en gert er fyrir kynslóðaskiptu eldi, þriggja ára eldisferli og að um 75% lífmassans sé í stærsta árganginum þegar mest er.

Áætlað er að svæðin verði að finna á Eyri/Fagraeyri, Höfðahúsabót og á Æðarskeri. Burðarþol hvers svæðis er áætlað 11.000 tonn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×