Langvarandi áhrif Covid-19 minnki yfirleitt með tímanum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. febrúar 2021 21:01 Sigríður Zoëga, sérfræðingur í hjúkrun og dósent við Háskóla Íslands. Mynd/Kristinn Ingvarsson Tæp sjötíu prósent þeirra sem greindust með covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi segjast hafa fundið fyrir þreytu og um helmingur hefur fundið fyrir verkjum og mæði, eftir að hafa jafnað sig af sjúkdómnum sjálfum. Langvarandi áhrif covid-19 fari þó minnkandi með tímanum. Þetta segir Sigríður Zoega, sérfræðingur í hjúkrun og dósent við Háskóla Íslands, en hún heldur utan um rannsókn um eftirköst covid-19 á Íslandi.
Sigríður segir að þau eftirköst sem Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkisslögreglustjóra, lýsti í samtali við fréttastofu í dag séu í nokkru samræmi við fyrstu niðurstöður úr þeim rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar. „Þær ríma nokkuð vel við þær niðurstöður sem við fengum úr fyrstu bylgjunni þegar við spurðum fólk um líðan þeirra þremur til sex mánuðum eftir að þau veiktust. Þá voru tæp sjötíu prósent sem greindu frá því að þau finndu fyrir þreytu, helmingur fann fyrir verkjum og mæði og um tuttugu og fimm til þrjátíu prósent fann fyrir skerðingu á bragð og lyktarskini,“ sagði Sigríður í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þessar niðurstöður séu í samræmi við sambærilegar erlendar rannsóknir. Sigríður segir að enn sé erfitt að segja til um það hversu langvarandi afleiðingarnar eru. „Við vitum það náttúrlega ekki í raun. Það er eitt ár frá fyrsta smiti núna í þessari viku og við vitum ekki hversu langvarandi þessi áhrif eru. En í Bretlandi þá hafa þeir búið til leiðbeiningar um meðferð sjúklinga með langvinnt covid og þeir hafa skilgreint það sem einkenni sem að vara í framhaldi af sjúkdómnum í allt að tólf vikur eða lengur og sem sem sagt ekki er hægt að skýra með öðrum sjúkdómum,“ segir Sigríður. Rannsókn heldur áfram Til stendur að halda áfram að rannsaka langvarandi afleiðingar covid hér á landi. „Við erum að hefja rannsókn núna þar sem við ætlum að leggja spurningalista aftur fyrir fólk núna ári eftir að það veiktist og við ætlum jafnframt líka að skoða líðan þeirra sem að veiktust núna í annarri og þriðju bylgju,“ segir Sigríður. Í raun séu engar vísbendingar ennþá um það hversu lengi eftirköst geti varað. „Erlendar rannsóknir hafa í raun allar sagt það sama, við vitum ekki hversu lengi þessi einkenni munu vara en við sjáum það yfirleitt að þau minnka með tímanum,“ segir Sigríður og ítrekar um leið mikilvægi þess að halda áfram öflugum sóttvörnum, faraldrinum sé ekki lokið.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum Innlent Ákærður fyrir að nauðga konu, taka það upp og setja myndefnið í póstkassa hennar Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Sást til ungmenna eftir háværan hvell í Kópavogi Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Fleiri fréttir Stuðmaður leggst undir feldinn Origo gagnrýnt fyrir enskunotkun: Gæðin eru „insane“ og áferðin „flawless“ Árekstur á Siglufjarðarvegi Fengu fullkomið veður við áratugalanga hefð í Hvalfirði Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ákærður fyrir að nauðga konu, taka það upp og setja myndefnið í póstkassa hennar Sást til ungmenna eftir háværan hvell í Kópavogi Gera Ísraelum að afstýra hungursneyð á Gasa „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Sjá meira
Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum Innlent
Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum
Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum Innlent