Titilvörnin hófst á sigri

Agnar Smári Jónsson sækir að marki Gróttu á Nesinu í …
Agnar Smári Jónsson sækir að marki Gróttu á Nesinu í kvöld. mbl.is/Unnur Karen

Íslandsmeistararnir í Val hófu titilvörnina á sigri í kvöld í 1. umferð Olís-deildar karla í handknattleik. 

Valsmenn fóru út á Seltjarnarnes og unnu Gróttu en naumlega þó. Valur vann 22:21 og Björgvin Páll Gústavsson varði frá Seltirningum í síðustu sókn leiksins. Björgvin gekk í raðir Vals frá Haukum í sumar. 

Róbert Aron Hostert var markahæstur hjá Val með 5 mörk en Birgir Steinn Jónsson skoraði 6 mörk fyrir Gróttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert