Rafmagnslaust á Ásbrú og í Höfnum í nótt

Rafmagnslaust verður á Ásbrú aðfaranótt 26. janúar.
Rafmagnslaust verður á Ásbrú aðfaranótt 26. janúar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Rafmagnslaust verður á Ásbrú og rafmagnsleysi og kaldavatnsleysi í Höfnum og nágrenni aðfaranótt 26. janúar. 

Komið hefur í ljós bilun í aflrofa í aðveitustöðinni við Ásbrú. Á meðan skipt er um aflrofann þetta mun orsaka rafmagnsleysi á Ásbrú og Höfnum ásamt rafmagnsleysi og kaldavatnsleysi í Höfnum og nágrenni. Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.

Rafmagn verður tekið af kl 00:00 á miðnætti aðfarnótt 26. janúar og verður afhending þjónustu einungis skert í eina klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert