Sport

Þrjú hundruð prósent hækkun á verðlaunafénu á HM kvenna í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir fær hér harðar móttökur þegar Ísland tapaði á móti Portúgal í umspilsleik fyrir laust sæti á HM í Ástralíu. KSÍ og íslensku félögin hefðu notið góðs af þátttöku liðsins á heimsmeistaramótinu eftir að FIFA hækkaði verðlaunaféð um þrjú hundruð prósent.
Sveindís Jane Jónsdóttir fær hér harðar móttökur þegar Ísland tapaði á móti Portúgal í umspilsleik fyrir laust sæti á HM í Ástralíu. KSÍ og íslensku félögin hefðu notið góðs af þátttöku liðsins á heimsmeistaramótinu eftir að FIFA hækkaði verðlaunaféð um þrjú hundruð prósent. Vísir/Vilhelm

Jú tölurnar ljúga ekki. Alþjóða knattspyrnusambandið hækkar verðlaunaféð á HM kvenna í fótbolta í ár um þrjú hundruð prósent. Það gerir þó ekki meira en það en að verða bara þriðjungur af því sem karlarnir fá.

FIFA er nú búið að gefa það út að verðlaunafé á HM kvenna í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í sumar verði samtals 150 milljónir dollara eða 21 milljarður í íslenskum krónum.

Þetta er þrjú hundruð prósent hækkun frá því að síðasta heimsmeistaramóti kvenna sem var í Frakklandi sumarið 2019 en þá var heildarverðlaunafé aðeins 30 milljónir dollara eða 4,2 milljarðar íslenskra króna.

Þetta er auðvitað mikil framför en það er samt sláandi að sjá að verðlaunaféð á HM karla í Katar í nóvember og desember síðastliðnum var samtals 440 milljónir dollara eða 62,3 milljarðar íslenskra króna. Þarna er enn mikill munur á.

Gianni Infantino, forseti FIFA, sagði frá þessu eftir að hann var endurkjörinn en jafnframt kom það fram hjá honum að hluti af þessum peningum verði að fara til leikmannanna sjálfra. Hann segir líka að stefnan sé að jafna þennan mun á milli kynjanna fyrir HM 2027.

Samkvæmt frétt ESPN þá er sundurliðunin líklega þannig að 110 milljónir Bandaríkjadala fari í sjálft verðlaunaféð, 31 milljón Bandaríkjadala fara til þjóða vegna undirbúnings fyrir keppnina og ellefu milljónir dollara fara til félaga sem eiga leikmenn á heimsmeistaramótinu.

Leikmenn frá mörgum þjóðum hafa verið að berjast fyrir jafnri skiptingu milli landsliða karla og kvenna og þar má nefna heimsmeistara Bandaríkjanna, Kanada, Frakkland og Spán. Bandaríkjamenn stigu loksins það skref en það gengur verr hjá hinum þjóðunum.

Ísland býr að því að hér hefur verið jöfn skipti á milli greiðslna til landsliðskarla og landsliðskvenna frá því í janúar 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×