Stórsigur í markaleik

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Barcelona

Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona unnu 46:35-útisigur gegn Benidorm í spænsku 1.  deildinni í handknattleik í kvöld.

Munurinn var orðinn ellefu mörk í hálfleik og var það að lokum munurinn á liðunum í leikslok er Barcelona vann enn einn sigurinn en liðið er með fullt hús stiga, 50 talsins, eftir 25 umferðir, á toppi deildarinnar. Aron skoraði eitt mark úr tveimur skotum á þeim tíma sem hann var inni á vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert