Innlent

Haglabyssan biluð og ekki hægt að útiloka voðaskot

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haglabyssan sem Gunnar Jóhann mætti með heim til Gísla hálfbróður síns. Vopnasérfræðingar hafa sýnt fram á galla í byssunni.
Haglabyssan sem Gunnar Jóhann mætti með heim til Gísla hálfbróður síns. Vopnasérfræðingar hafa sýnt fram á galla í byssunni. Norska lögreglan

Galli er á haglabyssunni sem skot hljóp úr og banaði Gísla Þór Þórarinssyni í Mehamn í Noregi í apríl í fyrra. Þetta staðfestu vopnasérfræðingar hjá norsku rannsóknarlögreglunni, Kripos, í dómsal í dag.

Gunnar Jóhann Gunnarsson, hálfbróðir Gísla, sætir ákæru fyrir manndráp. Sjálfur viðurkennir Gunnar að hafa orðið Gísla að bana en segir að skot hafi hlaupið úr byssunni í átökum bræðranna.

Hvernig skotið hljóp úr byssunni er lykilatriði í málinu en þar gæti skilið á milli hvort Gunnar Jóhann verði sakfelldur fyrir morð að yfirlögðu ráði eða manndráp af gáleysi. Saksóknari færir rök fyrir hinu fyrrnefnda. 

Við aðalmeðferðina í dag kom í ljós að galli var á haglabyssunni. Vopnasérfræðingar segjast ekki geta útilokað að skota hafi hlaupið úr byssunni án þess að togað var í gikkinn að því er fram kemur í umfjöllun staðarmiðilsins iFinnmark.

Ekki hægt að útiloka voðaskot

Um er að ræða tólf kalíbera haglabyssu. Vopnasérfræðingar hjá norsku lögreglunni komust að því við prófanir á byssunni að hægt var að framkalla skot úr byssunni með því að sleppa byssunni úr aðeins tuttugu sentímetra hæð. 

Gallinn er á öryggi byssunnar sem á að tryggja að skot hlaupi ekki úr byssunni án þess að togað sé í gikkinn.

Frá bænum Mehamn, norðarlega í Noregi.Getty

Vopnasérfræðingurinn Øyvind Strand sagði gallann á byssunni augljósan. Slíkur galli ætti ekki að geta uppgötvast fyrr en við fall úr 50-60 sentímetra hæð, með tilheyrandi krafti.

Til að framkalla skotið þurfti byssan þó að falla því sem næst lárétt á gólfið. Þegar byssuhlaupið lenti fyrst á gólfinu hljóp aldrei skot úr byssunni við prófanir.

Bjørn Andre Gulstad, verjandi Gunnars Jóhanns, spurði Strand hvort hægt væri að útiloka að skot hlypi úr byssunni við högg á öðrum stöðum en hlaupinu. Strand sagðist ekki geta útilokað það.

Þarf að toga fast í gikkinn

Að öðru leyti merkti norska rannsóknarlögreglan engan galla á haglabyssunni. Skotið hefur verið um sextíu sinnum úr byssunni við prófanir.

Þá var það sömuleiðis niðurstaða sérfræðinganna að skotinu sem banaði Gísla var hleypt af úr 10-80 sentímetra fjarlægð. Krafurinn sem þurfi til að toga í gikkinn svari til 2,3-2,9 kílóa.

„Þú þarft að toga fast í gikkinn til að hleypa af skoti,“ sagði Strand.


Tengdar fréttir

Strax ljóst að Gísla yrði ekki bjargað

Yfirlögregluþjónn sem var fyrstur á vettvang nóttina sem Gísli Þór Þórarinssyni var ráðinn bani í norska bænum Mehamn í apríl segir að strax hafi verið útséð að Gísla yrði ekki bjargað.

„Ég verð skugginn þinn þangað til þú hengir þig“

Gunnar Jóhann Gunnarsson segir að sér hafi ekki dottið í hug að nota neitt annað en haglabyss til að hræða hálfbróður sinn Gísla Þór Þórarinsson. Edel Olsen, réttargæslumaður íslenskra aðstandenda Gísla, spurðist fyrir um þetta í dómsal í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×