Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. apríl 2024 06:58 Blinken fundaði með ráðherrum ríkjanna við Persaflóa í gær. Til umræðu voru meðal annars friðarviðræður og mannúðarkrísan á Gasa. AP/Evelyn Hockstein Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Hamas það eina sem stendur á milli íbúa Gasa og vopnahlés. Hann hvetur samtökin til að ganga að „ótrúlega rausnarlegum“ tillögum Ísraelsmanna.
Ummælin lét Blinken falla á World Economic Forum í Sádi Arabíu í gær en ráðherrann er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd til að freista þess að stuðla að vopnahléi milli Ísrael og Hamas. Hann sagði að forsvarsmenn Hamas þyrftu að bregðast skjótt við en samkomulag gæti gjörbreytt stöðu mála í átökunum. David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands, var einnig á ráðstefnunni og hvatti Hamas sömuleiðis til að fallast á tillögur Ísrael. Sendinefnd Hamas í friðarviðræðunum yfirgaf Egyptaland í gær en sagðist myndu snúa aftur innan tíðar með skrifleg svör við tillögum Ísraelsmanna. Viðræður hafa staðið yfir í Kaíró en Ísraelsmenn hafa ekki gefið til kynna hvort þeir munu funda með fulltrúum Hamas. I joined representatives from Saudi Arabia, UAE, Qatar, Egypt, Jordan, and the Palestine Liberation Organization to discuss our work for lasting peace and security in the region as well as efforts to achieve a ceasefire with release of hostages. pic.twitter.com/9pa2kYvl61— Secretary Antony Blinken (@SecBlinken) April 29, 2024 Þessar nýjustu tillögur eru sagðar fela í sér nokkra eftirgjöf af hálfu Ísraelsmanna, sem eru sagðir hafa fallist á lausn aðeins 33 gísla gegn lausn palestínskra fanga í ísraelskum fangelsum. Þá er talað um annan áfanga vopnahlésins, viðvarandi friðartíma. Þá eru Ísraelsmenn sagðir hafa opnað á þann möguleika að ræða það að íbúar í norðurhluta Gasa fái að snúa heim og brotthvarf hermanna Ísrael sem hafast við á mörkunum sem skilja nú að norðurhlutann og suðurhlutann. Sameh Shoukry, utanríkisráðherra Egyptalands, segist bjartsýnn á gang viðræðnanna; búið sé að taka tillit til krafa beggja aðila og ná fram málamiðlun. Nú sé lokaákvörðunar beðið. Ísraelar hafa ekki ráðist inn í Rafah, enn sem komið er, en 30 eru sagðir hafa látist í loftárásum á borgina í gær. Að sögn Ísraelshers voru árásir gerðar á skotmörk þar sem hryðjuverkamenn voru taldir hafast við. Ísraelsmenn segja forystu Hamas hafast við í Rafah auk fjögurra bardagasveita. Sveitirnar séu að nota gíslana sem teknir voru 7. október síðastliðinn sem varnarvegg og það sé ómögulegt að ná markmiðum um tortímingu Hamas og björgun gíslana án þess að gera áhlaup á borgina. Ítarlega frétt um stöðu mála má finna á vef Guardian.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Hernaður Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Erlent Fleiri fréttir Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent