„Samfélagið hætti aldrei að moka“ Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2023 13:30 Theodór Sigurbjörnsson átti mjög góðan leik í gær og fagnaði innilega með stuðningsmönnum sínum sem fjölmenntu á Ásvelli þó að ekki væri gott í sjóinn. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Theodór Sigurbjörnsson rifjaði upp eldgosið í Heimaey þegar hann reyndi að útskýra fyrir sérfræðingunum í Seinni bylgjunni af hverju lið ÍBV virðist alltaf best þegar allt er undir í lok leikja. Eyjamenn komust í gær í 2-0 í einvígi sínu við Hauka um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta, með 29-26 sigri, og geta orðið meistarar á heimavelli á föstudagskvöld. Gestunum virtist líða afskaplega vel á lokakaflanum í gær þrátt fyrir að leikurinn væri ansi jafn, og þannig hefur það verið í vor. ÍBV hefur nefnilega enn ekki tapað leik í úrslitakeppninni. „Þessi leikur er bara sextíu mínútur og við erum ekkert að stressa okkur, sama hvernig staðan er. Þessi vél heldur bara alltaf áfram að malla,“ sagði Theodór sem settist niður með meðlimum Seinni bylgjunnar á Ásvöllum í gær. „Árið 1973 gaus í Vestmannaeyjum. Fólk var að moka og moka en aldrei sá högg á vatni. En samfélagið hætti aldrei að moka. Þetta samfélag varð sterkara fyrir vikið og við gefumst aldrei upp. Þetta samfélag er náttúrulega ótrúlegt. Það er eitthvað fárviðri hérna á Suðurlandinu, Herjólfur fer í Þorlákshöfn í skítabrælu, en stúkan er samt kjaftfull. Maður fær bara gæsahúð,“ sagði Theodór en spjallið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Theodór í stuði eftir sigurinn Snýst um að hafa gaman og njóta Theodór skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum í gær en markahæstur var Rúnar Kárason með 11 mörk úr 14 skotum. Theodór tók undir að menn eins og Rúnar og fleiri, sem ekki væru uppaldir í Eyjum, væru orðnir miklir Eyjamenn: „Já, algjörlega. Þú sérð til dæmis Ísak, frábær stemningsmaður. Pavel er náttúrulega eitthvað annað, eins og jóker inni á vellinum. Maður nær stundum ekki sambandi við hann þegar maður er að fá hann út af vellinum, hann er bara úti í horni hoppandi í einhverja hringi. Þetta er bara geggjað lið, vel samstillt og við erum bara flottir.“ Theodór tók jafnframt undir að leikmenn eins og hann, Kári Kristján Kristjánsson og fleiri væru miklir stemningsmenn sem smituðu út frá sér: „Já, algjörlega. Þetta snýst líka bara svolítið um að hafa gaman af þessu og njóta þess að vera í sportinu. Það eru forréttindi að spila þessa leiki og við eigum að taka allan kraftinn úr stúkunni, vera líflegir og njóta og hafa gaman. Það skiptir ekki máli hvernig staðan er,“ sagði Theodór en viðtalið við hann má sjá allt hér að ofan. Næsti leikur ÍBV og Hauka er í Eyjum á föstudagskvöld klukkan 19:15. Vegleg útsending hefst á Stöð 2 Sport klukkan 18:30. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði. Olís-deild karla ÍBV Haukar Seinni bylgjan Mest lesið Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Sjá meira
Eyjamenn komust í gær í 2-0 í einvígi sínu við Hauka um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta, með 29-26 sigri, og geta orðið meistarar á heimavelli á föstudagskvöld. Gestunum virtist líða afskaplega vel á lokakaflanum í gær þrátt fyrir að leikurinn væri ansi jafn, og þannig hefur það verið í vor. ÍBV hefur nefnilega enn ekki tapað leik í úrslitakeppninni. „Þessi leikur er bara sextíu mínútur og við erum ekkert að stressa okkur, sama hvernig staðan er. Þessi vél heldur bara alltaf áfram að malla,“ sagði Theodór sem settist niður með meðlimum Seinni bylgjunnar á Ásvöllum í gær. „Árið 1973 gaus í Vestmannaeyjum. Fólk var að moka og moka en aldrei sá högg á vatni. En samfélagið hætti aldrei að moka. Þetta samfélag varð sterkara fyrir vikið og við gefumst aldrei upp. Þetta samfélag er náttúrulega ótrúlegt. Það er eitthvað fárviðri hérna á Suðurlandinu, Herjólfur fer í Þorlákshöfn í skítabrælu, en stúkan er samt kjaftfull. Maður fær bara gæsahúð,“ sagði Theodór en spjallið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Theodór í stuði eftir sigurinn Snýst um að hafa gaman og njóta Theodór skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum í gær en markahæstur var Rúnar Kárason með 11 mörk úr 14 skotum. Theodór tók undir að menn eins og Rúnar og fleiri, sem ekki væru uppaldir í Eyjum, væru orðnir miklir Eyjamenn: „Já, algjörlega. Þú sérð til dæmis Ísak, frábær stemningsmaður. Pavel er náttúrulega eitthvað annað, eins og jóker inni á vellinum. Maður nær stundum ekki sambandi við hann þegar maður er að fá hann út af vellinum, hann er bara úti í horni hoppandi í einhverja hringi. Þetta er bara geggjað lið, vel samstillt og við erum bara flottir.“ Theodór tók jafnframt undir að leikmenn eins og hann, Kári Kristján Kristjánsson og fleiri væru miklir stemningsmenn sem smituðu út frá sér: „Já, algjörlega. Þetta snýst líka bara svolítið um að hafa gaman af þessu og njóta þess að vera í sportinu. Það eru forréttindi að spila þessa leiki og við eigum að taka allan kraftinn úr stúkunni, vera líflegir og njóta og hafa gaman. Það skiptir ekki máli hvernig staðan er,“ sagði Theodór en viðtalið við hann má sjá allt hér að ofan. Næsti leikur ÍBV og Hauka er í Eyjum á föstudagskvöld klukkan 19:15. Vegleg útsending hefst á Stöð 2 Sport klukkan 18:30. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.
Olís-deild karla ÍBV Haukar Seinni bylgjan Mest lesið Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Sjá meira