Einar eftir að Fram komst aftur á sigurbraut: „Hrikalega bjartsýnn á framhaldið“ Tómas Helgi Wehmeier skrifar 5. desember 2022 22:00 Einar Jónsson var ánægður með sigur kvöldsins. Vísir/Hulda Margrét Fram vann gríðarlega mikilvægan sigur í kvöld. Einar Jónsson, þjálfari Fram, var mjög ánægður með að fá tvö stig í kvöld þegar lið hans lagði ÍR í Breiðholti í Olís deild karla í handbolta. Fram hafði tapað þremur leikjum í röð og sigurinn þar af leiðandi extra sætur. „
Ég er fyrst og fremst bara ánægður að vinna leikinn, ÍR liðið er bara drullu flott lið þannig að fara með tvö stig héðan er ég gríðarlega sáttur með en miðað við hvernig við byrjuðum leikinn þá átti þetta ekkert að vera svona erfitt, það kemur þarna korters kafli í fyrri hálfleik þar sem við vorum bara ekki með.“ Fram leiddi með tíu mörkum, 1-11 þegar að rétt rúmar tólf mínútur voru liðnar af leiknum, ÍR jafna síðan leikinn fyrir lok fyrri hálfleiks. „ÍR-ingarnir breyttu svo sem engu, þeir héldu áfram að spila sinn leik, voru mjög flottir og virkilega vel gert hjá þeim. Við förum úr okkar leik, við hreyfðum aðeins til í liðinu en menn voru ekki skila því sem þeir eru vanir, við erum að fara illa með dauðafæri eins og í mörgum öðrum leikjum. Við vorum með tíu marka forskot og auðvitað vill maður bæta í en maður á ekki að missa það niður á korteri. Ég vill ekkert vera að henda þessu á einhverja leikmenn en þetta datt hrikalega niður hjá okkur og það er eitthvað sem ég þarf að skoða.“ Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram, spilaði örlítið meira en í síðustu leikjum vegna meiðsla og var það því mikilvægt fyrir Framara að fá hann aftur inn í liðið. „Hann er alltaf að verða betri og betri, hann náði aðeins að kasta núna og vildi láta reyna á þetta en hann er ekki alveg orðinn hundrað prósent. Hann er frábær í vörn, við erum búnir að vera nota hann eins mikið og við getum og við söknum hans sóknarlega en við erum með nóg af mannskap. Það er samt smá steikt að Reynir Þór, sautján ára pjakkur sé að halda þessu á floti fyrir okkur sóknarlega en hann er auðvitað mjög flottur, tek það ekki af honum en ég væri alveg til í að sjá meira framlag frá öðrum leikmönnum. Luka vaknar aðeins hérna síðustu fimmtán mínúturnar en var ekki að gera neitt fram að því þannig að menn þurfa bara að vera aðeins á tánum og halda áfram.“ Einar er bjartsýnn fyrir framhaldinu, Fram á einn deildarleik og einn bikarleik áður en Olís-deildin fer í pásu. „Ég er hrikalega bjartsýnn á framhaldið, við þurftum að ná í tvö stig í dag. Skiptir ekki öllu máli hvernig við gerðum það en það léttir aðeins yfir þessu. Við erum búnir að vera mjög góðir í allan vetur, svo kemur ein skíta vika, þá koma þrír leikir á okkur sem við vorum ekki alveg í takt við á þeim tíma en við þurftum klárlega þessi tvö stig í dag og ég er hrikalega ánægður með þá. Þetta gefur okkur góða innspýtingu fyrir framhaldið, við eigum einn deildarleik og einn bikarleik fram að pásu og við ætlum að vinna báða þá leiki,“ sagði Einar að endingu.
Handbolti Olís-deild karla Fram Tengdar fréttir Leik lokið: ÍR - Fram 27-31 | Eftir þrjá tapleiki í röð komst Fram loks á sigurbraut Eftir góða byrjun í Olís deild karla í handbolta hafði lítið gengið hjá Fram undanfarið þar sem liðið hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leik kvöldsins. Fram komst hins vegar aftur á sigurbraut með fjögurra marka sigri á ÍR. Umfjöllun og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. 5. desember 2022 21:00 Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Enski boltinn Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Í beinni: Manchester City - West Ham | City með pálmann í höndunum Enski boltinn Fleiri fréttir Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Sjá meira
Leik lokið: ÍR - Fram 27-31 | Eftir þrjá tapleiki í röð komst Fram loks á sigurbraut Eftir góða byrjun í Olís deild karla í handbolta hafði lítið gengið hjá Fram undanfarið þar sem liðið hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leik kvöldsins. Fram komst hins vegar aftur á sigurbraut með fjögurra marka sigri á ÍR. Umfjöllun og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. 5. desember 2022 21:00