Fótbolti

Stærsta tap Mourinho á ferlinum á köldu kvöldi í Noregi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Síðan José Mourinho hóf þjálfaraferil sinn hefur hann aldrei tapað með meiri mun en í gær.
Síðan José Mourinho hóf þjálfaraferil sinn hefur hann aldrei tapað með meiri mun en í gær. Fabio Rossi/AS Roma via Getty Images

José Mourinho, knattpyrnustjóri Roma, mátti þola sitt stærsta tap á ferlinum er liðið heimsótti Alfons Sampsted og félaga í Bodø/Glimt í Sambandsdeild Evrópu í gær. Alfons lagði upp þriðja mark heimaliðsins, en lokatölur urðu 6-1.

Staðan var 2-1 í hálfleik, en þá gerði Mourinho þrjár breytingar á liðinu. Sá portúgalski hafði svo notað allar fimm skiptingar sínar eftir um klukkutíma leik þegar staðan var orðin 3-1.

Þessar skiptingar komu þó ekki í veg fyrir þrjú mörk í viðbót frá heimamönnum og niðurstaðan varð því stærsta tap Moutinho á ferli sínum sem þjálfari.

Þetta var leikur númer 1.008 hjá Mourinho sem þjálfari, og þetta var aðeins í annað skipti á ferlinum sem hann tapar með fimm mörkum. Fyrra skiptið var árið 2010 þegar hann var þjálfari Real Madrid, en þá tapaði liðið 5-0 gegn Barcelona.

Þetta er einnig í fyrsta skipti á hans ferli þar sem lið hans fær á sig sex mörk eða meira. Aldrei þessu vant þá ákvað Mourinho að taka ábyrgð á tapinu stóra eftir leik.

„Ég ákvað að stilla liðinu svona upp þannig að ábyrgðin er mín,“ sagði Mourinho í samtali við Sky sports Italia í leikslok.

„Ég gerði það af góðum ástæðum. Ég vildi gefa leikmönnum tækifæri sem leggja sig fram og til að hræra í liðinu fyrir leik á gervigrasi í köldu veðri.“

„Við töpuðum fyrir liði sem sýndi meiri gæði í kvöld. Svo einfalt er það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×