Tákn af þaki Arnarhvols Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. október 2020 13:26 Stytturnar komnar niður og tilbúnar til flutnings. Láréttar en ekki lóðréttar eins og þær hafa verið undanfarin ár. Vísir/vilhelm
Ellefu styttur í mannsmynd á þaki Arnarhvols voru teknar niður í morgun. Eins og hálfs árs sýningu á listaverki Steinunnar Þórarinsdóttur er lokið. Hún segist þakklát fyrir tækifærið að sýna verk sýn á svo stórkostlegum stað. Næsta ferðalag styttnanna sé handan við hornið. Listaverkið heitir Tákn og er af ellefu mannverum í líkamsstærð. Verkin voru fyrst sýnd í Dresden í Þýskalandi en svo hér á landi í fyrra þegar Listasafn Reykjavíkur lagði áherslu á list í almenningsrými. „Við fundum þennan fína stað sem var einstakur bæði hvað varðar stærðarlega, hlutföll og slíkt. Staðsetningin er mögnuð,“ segir Steinunn á þessum tímamótum. „Okkar tilgangur var að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt. Við höfum tendens til að gleyma umhverfinu og sjá það á vanabundinn hátt. Taka ekki eftir því. Ég held að það hafi gengið upp.“ Svona hafa stytturnar blasað við borgarbúum undanfarna átján mánuði.Vísir/Einar Ríkisstjórnin samþykkti fyrir ári að veita sex milljónum króna af ráðstöfnunarfé ríkisstjórnarinnar til Steinunnar til að geta haft listaverkin á þaki Arnarhvols, húsnæði fjármála- og efnahagsráðuneytisins, í ár í viðbót. Steinunn segir að hún hafi boðið áðuneytinu að hafa verkið áfram endurgjaldslaust enn um sinn en ákveðið hafi verið að verkið yrði tekið niður. „Þetta er búið að vera alveg stórkostlegt. Viðbrögðin hafa verið alveg mögnuð. Bæði náttúrulega fyrst þegar verkin komu fyrst, þá fékk ég mjög mikil viðbrögð. Svo í ljós þegar kom að þau ættu að fara niður. Þá voru líka mikil viðbrögð. Ég er glöð og þakklát fyrir að hafa fengið tækfæri til að hafa verkið þarna.“ Rætt var við Steinunni við uppsetninguna í maí 2019. Hún segir verkin mögulega enn táknrænni nú í kórónuveirufaraldrinum en fyrir hann. „Verkin stóðu hlið við hlið með réttri fjarlægð á milli. Það var ákveðin samstaða og hugsun sem kom í það. Þetta er hópur.“ Steinunn mun geyma verkin á vinnustofu sinni í bili en framundan er annað ferðalag að henni sögn, sem skýrt verður frá síðar. „Þær fara að fara aftur í ferðalag þegar mál fara að verða eðlileg í heiminum.“ Fréttin hefur verið uppfærð með þeim upplýsingum að verkið var boðið ráðuneytinu áfram til sýningar um sinn endurgjaldslaust.
Menning Reykjavík Styttur og útilistaverk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Erlent Fleiri fréttir Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Sjá meira